Fréttablaðið - 27.09.2008, Side 8
8 27. september 2008 LAUGARDAGUR
STJÓRNMÁL „Annaðhvort reynirðu
að breyta stöðunni, eða ferð,“
segir Jón Magnússon, þingmaður
Frjálslynda flokksins, um þær
deilur sem nú eru uppi meðal
flokksmanna. Jón segir deilurnar
snúast um trúnaðarbrest og mál-
efnaágreining við Kristin H.
Gunnarsson þingflokksformann
meðal annars í málefnum innflytj-
enda og verðtryggingar lána.
„Ég gerði formanninum fylli-
lega grein fyrir því að það væri
ljóst að ég teldi fullreynt að Krist-
inn yrði að fara sem þingflokks-
formaður. Formaðurinn gengur
ekki að því gruflandi hver afstaða
mín er,“ segir Jón.
Hann vill ekki gefa upp hve
langan tíma Guðjón Arnar Kristj-
ánsson, formaður flokksins, hefur
til að leysa úr ágreiningnum innan
flokksins áður en Jón yfirgefur
Frjálslynda flokkinn. „Það tók
Sesar innan við tíu sekúndur að
fara yfir Rúbikon-ána,“ svarar
Jón. Hann hafi unnið að því að
byggja upp flokksstarfið og sé
kært til flokksins. Því muni hann
reyna til hins ýtrasta að láta sam-
starfið ganga.
„Ef menn eru á þeim buxunum
að ganga úr flokknum mun ég
reyna að bera klæði á vopnin og
athuga með starfaskiptingu og
slíkt,“ segir Guðjón Arnar. Hann
geti þó ekki sagt til um hvort skipt
verði um þingflokksformann, þar
sem þingflokkurinn taki þá
ákvörðun. Spurður hvort hann sé
vongóður á að sátt náist, miðað við
þá heift sem birst hafi í ummæl-
um flokksmanna upp á síðkastið,
segist Guðjón vona að það takist:
„Ef menn ætla að reka pólitík á
heift gengur það aldrei.“
Guðjón segir að Jón hafi lýst því
yfir að hann sé ósáttur við það
ástand sem nú ríki: „Hann getur
litið svo á að ég ráði ekki hvernig
hann hagar sínum gerðum.“
Guðjón segir að flest deilumál
innan flokksins hafi verið milli
einstaklinga, „oftast um einhverja
stöði innan flokksins eða sam-
skipti. Í smærri flokkum er erfið-
ara að skipta verkum.“ Hann bend-
ir þó á að innan flokksins hafi veri
ágætist málefnavinna í gangi.
Magnús Þór Hafsteinsson, vara-
formaður flokksins, og Sigurjón
Þórðarson, sem hefur lýst áhuga á
formannsembættinu, segja báðir
að þeir muni ekki fylgja Jóni,
ákveði hann að fara. Réttara sé þó
fyrir Jón að bíða fram að lands-
þingi í apríl. svanborg@frettabladid.is
Jón hótar að yfirgefa
Frjálslynda flokkinn
Jón Magnússon segist munu yfirgefa Frjálslynda flokkinn verði ekki skipt um
þingflokksformann. Formaðurinn segir að skipting starfa verði athuguð. Magn-
ús Þór og Sigurjón hvetja Jón til að bíða fram að landsþingi í vor.
JÓN MAGNÚSSON Segir formann Frjálslynda flokksins ekki ganga að því gruflandi
hver sín afstaða er. Kristinn H. Gunnarsson þurfi að víkja, eða Jón hættir í flokknum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ DANÍEL
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarstjórn
Kópavogs hefur staðfest ákvörð-
un bæjarráðs um að veita súlu-
staðnum Goldfinger undanþágu
fyrir nektardansi.
Fulltrúar Samfylkingar í bæj-
arstjórninni lögðu til að ekki yrði
leyft að stunda nektardans á
Goldfinger. „Slík starfsemi geng-
ur þvert á vilja og stefnu bæjar-
yfirvalda, sem telja hana hvorki
æskilega né nauðsynlega í bæjar-
félaginu,“ sagði í tillögu þeirra
Guðríðar Arnardóttur, Hafsteins
Karlssonar, Jóns Júlíussonar og
Flosa Eiríkssonar.
Ólafur Þór Gunnarsson, bæjar-
fulltrúi Vinstri grænna, greiddi
tillögu Samfylkingarmanna
atkvæði en sat síðan hjá þegar
afgreiðsla bæjarráðs á málinu
var staðfest með sex atkvæðum
sjálfstæðismannanna Gunnsteins
Sigurðssonar, Margrétar Björns-
dóttur, Ásthildar Helgadóttur,
Ármanns Kr. Ólafssonar og Sig-
ríðar Þorgrímsdóttur og fram-
sóknarmannsins Ómars Stefáns-
sonar.
Eins og borgaryfirvöld í
Reykjavík segir bæjarstjórn
Kópavogs sig skorta lagagrund-
völl til að synja skemmtistöðum
um leyfi til nektardans.
„Ég vil að þolendur starfsemi
nektarstaða njóti vafans,“ sagði
Flosi Eiríksson, sem var sá eini
sem lét bóka sérstaka athuga-
semd við atkvæði sitt. - gar
Bæjarstjórn Kópavogs staðfesti undanþágu fyrir súlustaðinn Goldfinger:
Nektardans fékk sex atkvæði
Á GOLDFINGER Ásgeir Davíðsson, eig-
andi Goldfinger, með starfsliði sínu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Styrkir til
vinnustaðakennslu
og námsefnisgerðar
www.si.is
Framtíð iðnaðar veltur á menntun og
mannauði. Aukin þekking gefur iðnaðinum
takmarkalaus tækifæri til vaxtar, nýsköpunar
og útrásar. Mikilvægt er að nemendum í iðn-
og starfsnámi standi til boða námsefni og
kennsla við hæfi.
SI auglýsa eftirfarandi styrki lausa til
umsóknar:
• Styrkir til námsefnisgerðar
í greinum sem varða iðnað
• Styrkir til vinnustaðakennslu
í fyrirtækjum SI
Umsóknarfrestur er til 1. október.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.si.is.
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Klæðir börn vel!
Helen stelpuúlpa
St. 80-130
6.990
Hugo strákaúlpa
St. 80-130
6.990
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki