Fréttablaðið - 27.09.2008, Blaðsíða 7
OPINN FUNDUR UM FJÁRMÁL HEIMILANNA
MIÐVIKUDAGINN 1. OKTÓBER Á HILTON REYKJAVÍK NORDICA HOTEL, KL. 20.00
DAGSKRÁ
19.30 Húsið opnað
Ráðgjafar Glitnis veita persónulega ráðgjöf í anddyri.
20.00 Fundur settur
Birna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabanka Glitnis á Íslandi.
20.10 Hvert stefnir í fjármálum heimilanna?
Ingólfur Hreiðar Bender, forstöðumaður Greiningar Glitnis, fjallar um fjárhagslega stöðu heimilanna.
Hvernig munu helstu áhrifaþættir fjárhagsstöðu þeirra þróast á næstunni? Hvert stefnir gengi
krónunnar, vextirnir, verðbólgan, atvinnuleysið, kaupmátturinn og húsnæðisverðið? Hver verða
áhrifin á heimilin?
20.30 Er botninum náð?
Sigurður B. Stefánsson, sjóðsstjóri hjá Glitni Sjóðum, fjallar um hvernig huga eigi að sparnaði í
dag, hvar tækifærin liggja og hvað ber að forðast.
20.50 Hvernig tekst ég á við fjármálin?
Lilja Pálsdóttir, útibússtjóri Glitnis Þarabakka, fjallar um gildi þess að horfast í augu við fjármálin
og taka þau föstum tökum.
21.10 Hvernig næ ég árangri í fjármálum?
Unnur Magnúsdóttir, Dale Carnegie þjálfari og ráðgjafi, kynnir nýtt námskeið varðandi
markmiðasetningu í fjármálum.
21.20 Spurningar og svör
21.40 Fundi slitið
Ráðgjafar Glitnis veita persónulega ráðgjöf í anddyri. Boðið upp á kaffiveitingar.
Fundarstjóri er Heimir Karlsson fjölmiðlamaður.
Lokað verður fyrir skráningu þriðjudaginn 30. september kl. 16.00.
Við vonum að þú sjáir þér fært að mæta og hlökkum til að sjá þig.
Starfsfólk Glitnis.
Vinsamlega skráðu þátttöku þína á glitnir.is eða í þjónustuveri Glitnis í síma 440 4000.
Allir velkomnir, en sætafjöldi er takmarkaður.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-1
3
7
0