Fréttablaðið - 27.09.2008, Page 50

Fréttablaðið - 27.09.2008, Page 50
30 27. september 2008 LAUGARDAGUR „Staur er mitt uppáhald, þótt ég hafi maulað hann í fjörutíu ár. Það er ekki hægt að verða leiður á honum,“ segir Ævar Guðmundsson, eigandi Sælgætis- gerðarinnar Freyju, sem stendur á ní- ræðu um þessar mundir. „Freyja er fyrsta og elsta sælgæt- isgerð landsins og byrjaði með fram- leiðslu á Valencia-súkkulaði og Freyju- karamellum á Vesturgötunni, en fyr- irtækið stofnaði Magnús Þorsteinsson árið 1918. Þá varð strax mikil eftir- spurn eftir sælgæti og fólk gat komið með bréf utan af Freyju-karamellum og fengið eitthvað annað í staðinn,“ segir Ævar og brosir að fegurð fortíðar. „Freyja varð fljótt stór vinnuveitandi með allt að fjörutíu manns í vinnu við að handgera og handpakka inn sælgæti. Magnús stóð vaktina í fjörutíu ár, var framsýnn og fékk þýskan sælgætisgerð- armann í vöruþróun, en þannig varð til Staur, Hrís, Rís og konfekt,“ segir Ævar um dísætu Freyju sem skipti um eig- endur 1959 þegar Viggó Jónsson eign- aðist meirihluta í fyrirtækinu. „Pabbi keypti hlut í fyrirtækinu 1974, og 1980 kaupum við Jón bróðir ásamt pabba fyrirtækið í heild sinni. Þá voru erfiðir tímar þegar innflutningur á út- lendu sælgæti var gefinn frjáls og tók því ekki að setja framleiðslu í gang næstu þrjá mánuði á eftir meðan lands- menn átu á sig gat af innfluttu sælgæti. Þessu náðum við að snúa við og nú velja Íslendingar íslenskt sælgæti fram yfir innflutt,“ segir Ægir sem framleiðir enn mörg af elstu vörumerkjum Freyju. „Valencia, Freyju-karamellur, Rís, Staur og Hrís standa alltaf tímans tönn, en í heildina framleiðum við yfir 200 vörutegundir. Frá 1981 höfum við keypt aðrar sælgætisgerðir og í dag sam- anstendur Freyja af sex sælgætisfyr- irtækjum: Víkingi, KÁ, Lakkrísgerð- inni Skugga og nú síðast Mónu, sem við keyptum 2004,“ segir Ævar og seilist eftir súkkulaðimola í laglegri skál. „Hér er alltaf nammi á borðum og við borðum heilmikið af gotteríi án þess að átta okkur á því, en þótt starfsfólkið megi standa á beit í sælgæti allan dag- inn er hér enginn með hold utan á sér. Hér hefur ávallt verið mottó að stíla inn á gæði og nota aðeins fyrsta flokks hrá- efni. Við notum engar transfitusýrur í okkar sælgæti né annað skaðlegt heils- unni. Þetta er bara ánægja og vellíð- an, en auðvitað er allt best í hófi,“ segir Ævar sem finnur ekki fyrir samdrætti í sælgætissölu þótt prédikað sé um minni sykurneyslu meðal þjóðarinnar. „Í dag vill fólk stærri pakkningar og velja sér sjálft sitt uppáhald af sælgæt- isbörum, en neysla hefur færst meira yfir á helgar og nammidaga. Við brugð- umst við eftirspurn eftir hollari kosti með framleiðslu á fyrstu íslensku orku- stykkjunum, Hreysti og Krafti, í sam- vinnu við Arnar Grant og Ívar Guð- mundsson, sem hafa fengið afskaplega góðar viðtökur,“ segir Ævar og upplýsir að Draumur, ásamt Djúpum séu vinsæl- asta góðgætið frá Freyju. „Draumur er okkar uppfinning og sló í gegn þegar hún fór í framleiðslu 1982. Draumur kom Freyju aftur á kortið og yngdi okkur upp.“ thordis@frettabladid.is SÆLGÆTISGERÐIN FREYJA: STOFNUÐ FYRIR 90 ÁRUM Draumurinn yngdi okkur upp SÚKKULAÐIGRÍSIR Ævar Guðmundsson, til hægri, með verkstjóranum Einari Steingrímssyni sem á lengstan starfsaldur að baki í Freyju. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ROKKARINN AVRIL LAVIGNE ER 24 ÁRA. „Fólk röflar yfir því að ég þekki ekki Sex Pistols, en hví ætti ég að kunna skil á þeim? Takið með í reikninginn hvað ég er ung. Hitt er eldgömul hljóm- sveit, ekki satt? Ég skapa pönk fyrir daginn í dag og þá sem eru ungir nú. Ég er Sid Vicious nýrrar kynslóðar.“ Kanadastúlkan Avril Lavigne hefur sýnt að hún er sjálfstæð og staðföst. Hún var aðeins átján ára þegar plata hennar Complicated fór í fyrsta sæti Billboard-listans. Söngleikurinn Hárið var frumsýndur í Lundúnum fyrir 40 árum. Hárið er rokksöng- leikur sem segir frá hópi hippa með sterk- ar stjórnmálaskoðan- ir og sem lifir óhefð- bundnu kommúnu- lífi í New York. Þeir berjast gegn herkvaðningu í Víetnam-stríðið og streitast við að ná jafnvægi á milli ungæðis, ástar og kynlífsbylting- ar og hafa óbeit á íhaldssemi for- eldra sinna og þjóðfélagsins. Söngleikurinn lýsir vel hippa- lífi og kynlífs- og eiturlyfjabylt- ingu sjöunda áratugarins, en frjálslegar nektarsen- ur ollu miklu fjaðra- foki. Hárið braut blað í sögu söngleikja með innkomu rokktónlist- ar, blöndun kynþátta í hlutverkaskipan og boði til áhorfenda um að vera með í loka- senu verksins. Eftir frumsýningu á off-Broad- way 1967 var Hárið sett upp á Broadway, en í Lundúnum setti það aðsóknarmet og var sýnt 1.997 sinnum. Tónlistin í Hárinu varð að lof- söng friðarhreyfinga gegn Víet- nam-stríðinu. Kvikmynd byggð á söngleiknum var gerð 1979. ÞETTA GERÐIST 27. SEPTEMBER 1968 Hár frumsýnt í London Okkar ástkæri, Eðvald Einar Gíslason Suðurbraut 22, Hafnarfirði, lést mánudaginn 22.september á Landspítala háskóla- sjúkrahúsi. Útför hans verður gerð frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 30. september kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Ágústa Hinriksdóttir Ragnhildur Rósa Eðvaldsdóttir Andrea Gísladóttir Ólafur Þ. Jóhannesson Andrea Eðvaldsdóttir Katrín Rósa Eðvaldsdóttir Þorsteinn Helgi Stefánsson Fannar Eðvaldsson Árdís Ethel Hrafnsdóttir Eyrún Eðvaldsdóttir Gunnar Örn Jóhannsson og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hjördís Óladóttir áður til heimilis að Engimýri 12, Akureyri, andaðist að Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hlíð, Akureyri, laugardaginn 20. september sl. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju, mánudaginn 29. september nk. kl. 13.30. Óli G. Jóhannsson Lilja Sigurðardóttir Edda Jóhannsdóttir Þórhallur Bjarnason Örn Jóhannsson Þórunn Haraldsdóttir Emilía Jóhannsdóttir Eiður Guðmundsson ömmubörn og langömmubörn. 80 ára afmæli Aðalsteinn Elías Jónsson Laugardaginn 27. september nk. verður Steini Jóns ,,kallinn“ áttræður. Hann tekur á móti gestum í tilefni dagsins á heimili sínu, Helluhóli 4, Hellissandi, á milli kl. 15.00 - 18.00. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Svava Guðjónsdóttir áður til heimilis að Bakkahlíð 45, Akureyri, andaðist á Dvalarheimilinu Hlíð föstudaginn 12. september. Útför hennar fer fram frá Glerárkirkju mánudaginn 29. september kl. 13.30. Ingveldur Steindórsdóttir Jón Steindórsson Þorgerður Guðmundsdóttir Birgir Steindórsson Ásta Kröyer Guðjón Steindórsson Ásta Björgvinsdóttir Hulda Magnúsdóttir Friðrik Gunnarsson og öll ömmubörnin. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför elskulegrar eiginkonu, móður, dóttur, tengdamóður og ömmu, Steinunnar Brynjúlfsdóttur lífeindafræðings, Hegranesi 31, Garðabæ. Halldór Guðbjarnason Lilja Dóra Halldórsdóttir Elín Dóra Halldórsdóttir Brynjúlfur Jónatansson Brynjúlfur Jónatansson tengdasynir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Stefán Einar Stefánsson rafverktaki, Breiðabliki 3, Neskaupstað, lést á fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað mánudaginn 22. september. Útför hans fer fram frá Norðfjarðarkirkju þriðjudaginn 30. sept. kl. 14.00. Ása Stefánsdóttir Bergþóra Stefánsdóttir Elmar Halldórsson Guðný Stefánsdóttir Þuríður Stefánsdóttir Björn Kristjánsson Aldís Stefánsdóttir Rúnar Gunnarsson Þóra Stefanía Stefánsdóttir Karl Gunnar Eggertsson barnabörn og barnabarnabörn. Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og kærleika í ýmsum myndum við fráfall og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, Elínborgar Guðjónsdóttur frá Vésteinsholti í Haukadal. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir hjúkrun og elskulega umönnun í erfiðum veikindum hinnar látnu og nærgætni og hlýju við aðstandendur. Fyrir hönd ættingjanna, Guðmundur Jónsson Magnea E. Auðunsdóttir Sigurlaug J. Jónsdóttir Ólafur K. Guðmundsson Kristín Jónsdóttir Haukur Björnsson Kristbjörg Jónsdóttir Jón Hreiðar Hansson Vésteinn Jónsson Þorbjörg Jónsdóttir Jón Friðrik Jónsson Jenný L. Kjartansdóttir timamot@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.