Fréttablaðið - 23.10.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
FIMMTUDAGUR
23. október 2008 — 290. tölublað — 8. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég á margar gerðir af þessum
ullarbuxum sem kona norður í
landi prjónaði fyrir mig. Ég eign-aðist fyrstu buxurnar fyrir tæpum
tveimur árum og hef notað þær
nær samfleytt síðan − vetur,
sumar, vor og haust,“ segir Judith
ánægð.
Buxurnar h
með pilsi,“ útskýrir Judith en hún
hefur notað buxurnar jafnt í úti-legu og sem tískufatnað. „Auk
þess er ég mikið fyrir ull og mig
klæjar ekki undan henni.“Buxurnar sem Judith klæðist ámyndinni eru með liJ
verkefnið mitt en áður hannaði ég
búninga fyrir leiksýningu sem
heitir Vinir og var frumsýnd í
ágúst. Það er frábært að fá að
byrja í Þjóðleikhúsinu en é kbara h i
Sérsaumaðar ullarbuxur notaðar við hvert tilefni
Búningahönnuðurinn Judith Amalía Jóhannsdóttir hefur gaman af fötum í ýmsu tilliti en auk þess að
hafa skemmtilegan fatastíl hannar hún búninga fyrir leikhús. Forláta ullarbuxur eru uppáhaldið.
Fatastíll Judithar hefur víða vakið athygli en hún hefur gaman af að klæðast litríkum fatnaði og mismunandi efnum. Hér klæðist
hún glitrandi ullarbuxum og bomsum utan yfir skóna, líkt og notaðar voru á stríðsárunum, en Judith er dugleg við að nýta gamla
hluti.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
REYKINGAR Íslendinga eru ekki eins miklar í ár og á síðasta
ári samkvæmt niðurstöðu könnunar sem Capacent Gallup gerðir
fyrir Lýðheilsustöð. Tíðni daglegra reykinga fullorðinna hefur lækk-
að úr 19,0 prósentum árið 2007 í 17,6 prósent 2008 og munar
mest um að færri konur reykja.
TILBOÐ VIKUNNAR
Patti lagersala
verð áðu 219
kr.129.900,-
aðeins
Sofasett 3+1+1
Meistarans tök
á eldri sögu
Ritdómur um nýja
skáldsögu Einars
Kárasonar,
Ofsa.
MENNING 36
veljum íslensktFIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2008
JUDITH AMALÍA JÓHANNSDÓTTIR
Búningahönnuður með
skemmtilegan fatastíl
• tíska • heimili • heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
VELJUM ÍSLENSKT
Lostæti, listmunir og
dýrindis tískuvara
Sérblaðið Veljum íslenskt
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Opið til 21
Vinnur með
Brad Pitt
Heba Þórisdóttir
farðar Brad Pitt í
næstu mynd Quentins
Tarantino.
FÓLK 54
Engan hvítþvott
Fráleitt væri að ríkisstjórnin gæfi
sjálf út hvítbók um efnahagshrun-
ið, hún yrði sennilega hvítþvottar-
bók, skrifar Þorvaldur Gylfason.
Í DAG 24
SKAPTI ÓLAFSSON
Beið í 64 ár eftir að
gefa út plötu
Áttræður og man tímana tvenna
FÓLK 42
STORMVIÐVÖRUN! Í fyrstu verður
norðaustan stormur á Vestfjörðum
en sunnan og suðvestantil síðdegis.
Rigning syðra en slydda eða snjó-
koma vestan til. Úrkomulítið á
Norðausturlandi. Hiti 0-5 stig.
VEÐUR 4
2
0
0
4
2
Meistaradeild
Evrópu
Misjafnt gengi hjá
ensku liðunum
en Börsungar
buðu til marka-
veislu.
ÍÞRÓTTIR 48
VEÐRIÐ Í DAG
MÓTMÆLI „Við teljum þetta raunhæfa áætlun til að
hafa veruleg áhrif á almenning í Bretlandi sem
hefur alls ekki verið upplýstur um sannleika
málsins,“ segir Ólafur Elíasson tónlistarmaður og
einn aðstandenda hreyfingar sem berst fyrir bættri
ímynd Íslands í Bretlandi.
Hreyfingin hefur opnað heimasíðu á slóðinni
indefence.is þar sem Íslendingar eru hvattir til að
undirrita yfirlýsingu til bresku þjóðarinnar. Í
yfirlýsingunni segir að Gordon Brown, forsætisráð-
herra Breta, hafi á óréttmætan hátt beitt hryðju-
verkalögum gegn Íslendingum til að þjóna pólitísk-
um skammtímahagsmunum sínum. Þetta hafi breytt
grafalvarlegri stöðu í efnahagshrun sem snerti bæði
íslenskar og breskar fjölskyldur. „Gordon Brown
hefur tekist að spinna þetta svona fyrst og fremst
vegna þess að almenningur í Bretlandi er ekki
upplýstur um sjónarmið Íslendinga,“ segir Ólafur.
Hann segir Breta eiga erfitt með að sætta sig við að
á þá sé litið sem yfirgangssama rudda. „Sérstaklega
þar sem þetta er að gerast í krafti umdeildra
hryðjuverkalaga.“
Ólafur segir einstakt að þjóð ávarpi aðra þjóð með
þessum hætti. Í gærkvöldi höfðu tæplega nítján
þúsund Íslendingar skrifað undir yfirlýsinguna á
vefsíðunni indefence.is. - ovd
Óska aðstoðar bresks almennings til að stöðva misbeitingu hryðjuverkalaga:
Íslendingar ekki hryðjuverkamenn
SKÝR SKILABOÐ Auður Ýr Geirsdóttir, starfsmaður Sushibarsins við Laugaveg, er ekki hryðjuverkamaður. Tæplega 19 þúsund
einstaklingar höfðu skráð nafn sitt á undirskriftalistann klukkan sex í gær. MYND/LUKKA SIGURÐARDÓTTIR
FÓLK Húsfylli var í Iðusölum við
Lækjargötu í gær þegar leikar-
arnir Frank Hvam, Casper
Christensen og Iben Hjejle úr
dönsku gamanþáttunum Klovn
buðu fjölmiðlum og aðdáendum á
sérstaka forsýningu á hluta af
sjöttu þáttaröð Klovn sem
væntanleg er á skjáinn innan
skamms.
Tilefni komu leikaranna til
landsins var einnig útgáfa fimmtu
þáttaraðar Klovn á DVD þann 4.
nóvember næstkomandi. - kg
Danskir sprellarar á Íslandi:
Klovn vöktu al-
menna kátínu
LÍF OG FJÖR Góður rómur var gerður að
gamanmálum Klovn-leikaranna.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Stórlán kallar
fátækt yfir Ísland
„Ég mun aldrei í lífinu samþykkja
stórt lán sem kallar fátækt yfir
Ísland,“ segir Pétur H. Blöndal
alþingismaður. Hann hefur greint
frá þessari skoðun sinni í þingflokki
sjálfstæðismanna.
Pétur segir að fjörutíu ár hafi
tekið að byggja upp íslenska lífeyr-
issjóðakerfið „og nú á ef til vill að
greiða út á einu bretti sem nemur
helmingnum af því sem safnað
hefur verið í áratugi með miklum
fórnum“.
„Ég tel mig hafa nokkuð traust-
ar heimildir fyrir því að meðal skil-
yrða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sé að
Íslendingar hafi náð sátt við Breta,
vegna Icesave-reikninganna,“ segir
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstri grænna. Hann segir að
fallast megi á að taka erlend lán
til að gjaldeyrisviðskipti gangi eðli-
lega fyrir sig. „En ég vil ekki vera sá
maður að bera ábyrgð á því að ís-
lenska þjóðin gangi í ábyrgðir vegna
þessara innlánsreikninga fjárglæfra-
manna erlendis.“ - ikh / sjá bls. 4
STJÓRNMÁL „Við höfum ekki fallist
á þessi lögfræðilegu rök sem þeir
tefla fram,“ segir Geir H. Haarde
forsætisráðherra um viðræður
Íslendinga og Breta um lausn
bankadeilunnar sem reis í kjölfar
yfirtöku íslensku viðskiptabank-
anna.
Geir vill ekki svara því hvort
þíða sé í samskiptum stjórnmála-
og embættismanna ríkjanna en
leggur áherslu á nauðsyn þess að
ræðst sé við. Öðru vísi fáist ekki
botn í málin. „En ég tel að þeir
hafi sýnt okkur alveg fádæma
hörku sem Íslendingum of-
býður.“
Geir kveðst ekki geta sagt til
um hvort hann sjái fyrir endann á
málinu og ítrekar að eðlilegt sé að
réttarágreiningur sé leystur fyrir
dómstólum.
Viðræðunefndir ríkjanna rædd-
ust við á löngum fundi í Reykja-
vík í gær og halda viðræður
áfram í dag.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins krefjast bresk stjórn-
völd þess að eignir Landsbankans
í Bretlandi verði nýttar til að
standa undir öðrum skuldbind-
ingum bankans í landinu en kostn-
aði vegna Icesave reikninga. Það
er þvert á hugsun neyðarlaganna
sem gera ráð fyrir að eignirnar
mæti innstæðum Icesave. Geir
segist ekki geta staðfest þetta.
Vinna við nýja þjóðhagsspá
tefur formlega ákvörðun um að
leita til Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins. „Það þarf að meta ýmislegt
sem er hugsanlega gjörbreytt frá
því sem áður var þannig að það er
heilmikið verk eftir og ákveðið
vandamál að spá fyrir um tölur,“
segir Geir. Þó sé ljóst að þjóðar-
framleiðslan muni dragast saman
og atvinnuleysi aukast. „Síðan fer
verðbólgan eftir því hvernig tekst
að koma jafnvægi á gengið.“
- bþs, ghs
Ísland fellst ekki á
lagarök Bretanna
Lausn á bankadeilu Íslendinga og Breta er ekki í sjónmáli. Viðræðum verður
framhaldið í dag. Málaferli koma enn til greina. Forsætisráðherra segir Breta
hafa sýnt fádæma hörku sem ofbjóði Íslendingum. Þjóðhagsspár er enn beðið.