Fréttablaðið - 23.10.2008, Síða 64

Fréttablaðið - 23.10.2008, Síða 64
48 23. október 2008 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is Það vakti eðlilega mikla athygli síðasta sumar þegar Alfreð Gísla- son tók við þjálfun þýska stórliðsins Kiel. Kiel hefur verið eitt af tveim bestu félagsliðum heims síðustu ár, er með stórkostlega leikmenn innan sinna raða og er stefnan sett á að vinna allar keppnir. „Umhverfið hér er frábært og félagið magnað. Hér er staðið betur að öllum hlutum en ég hef áður kynnst,“ sagði Alfreð sem veit um kröfur félagsins en finnur ekki fyrir pressunni. „Ég er ekkert að velta mér upp úr því sem er skrifað í blöðin enda les ég þau ekki. Ég hef engar áhyggjur af slíku. Ég veit vel að við erum með frábært félag og félagið gerir kröfur en ég fer ekkert á taugum yfir slíku. Ég verð náttúru- lega hengdur ef ég skila engum dollum í hús,“ sagði Alfreð léttur. Honum líkar lífið afar vel í Kiel. Er kominn með hús á leigu þar en hans aðalheimili er í útjaðri Magdeburg. Svo er hann einnig með hús á leigu fyrir utan Köln þar sem hann vann áður en húsaleigusamningurinn rennur ekki út fyrr en næsta sumar og því stendur húsið autt. „Það er mjög fínt að vera í Kiel en mikið að gera. Það er samt gaman á meðan það gengur sæmilega. Það var náttúrulega ekkert stórkostlegt að gera jafntefli við Dorma- gen í fyrsta leik í deildinni en menn voru ekkert að æsa sig yfir því,“ sagði Alfreð sem síðan hefur náð að kveikja almennilega á liðinu sem er nú komið á toppinn í þýsku úrvalsdeildinni og var svo að leggja Barcelona á útivelli í Meistaradeildinni Barca hafði ekki áður tapað heima í keppninni. „Það var alveg frábær leikur og sérstaklega síðari hálfleikurinn. Karabatic var að spila sinn fyrsta leik með okkur þar í 60 mínútur og það munar nokkuð um að fá hann aftur,“ sagði Alfreð en hann hefur lent í nokkrum meiðslum með mannskap sinn. Á móti kemur að hinn 38 ára Stefan Lövgren hefur heldur betur stigið upp í byrjun vetrar og spilað frábærlega. ALFREÐ GÍSLASON: FINNUR EKKI FYRIR PRESSUNNI HJÁ KIEL ÞÓ SVO AÐ HANN SÉ MEÐVITAÐUR UM KRÖFURNAR Verð hengdur ef ég skila ekki dollum í hús hjá Kiel Meistaradeild Evrópu A-riðill: Bordeaux-CFR Cluj 1-0 1-0 sjálfsmark (54.). Chelsea-Roma 1-0 1-0 John Terry (77.) STAÐAN: Chelsea 3 2 1 0 5-0 7 CFR Cluj 3 1 1 1 2-2 4 Roma 3 1 0 2 4-4 3 Bordeaux 3 1 0 2 2-7 3 B-riðill: Inter-Anorthosis 1-0 1-0 Adriano (44.). Panathinaikos-Werder Bremen 2-2 0-1 Per Mertesacker (29.), 1-1 Vangelis Mantzios (36.), 2-2 Hugo Almeida (83.). STAÐAN: Inter 3 2 1 0 4-1 7 Anorthosis 3 1 1 1 3-2 4 Bremen 3 0 3 0 3-3 3 Panathinaikos 3 0 1 2 3-7 1 C-riðill: Shakhtar Donetsk-Sporting 0-1 0-1 Liedson (76.). Basel-Barcelona 0-5 0-1 Lionel Messi (4.), 0-2 Sergi Busquets (15.), 0-3 Bojan Krkic (22.), 0-4 Bojan Krkic (46.), 0-5 Xavi Hernández (48.). STAÐAN: Barcelona 3 3 0 0 10-2 9 Sporting 3 2 0 1 4-3 6 Shakhtar 3 1 0 2 3-4 3 Basel 3 0 0 3 1-9 0 D-riðill: Atletico Madrid-Liverpool 1-1 0-1 Robbie Keane (14.), 1-1 Simao (83.). PSV-Marseille 2-0 1-0 Danny Koevermans (71.), 2-0 Danny Koevermans (85.). STAÐAN: Atletico 3 2 1 0 6-2 7 Liverpool 3 2 1 0 6-3 7 PSV 3 1 0 2 3-6 3 Marseille 3 0 0 3 2-6 0 Iceland Express-deild kvk Keflavík-KR 72-60 (34-30) Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 29 (10 frák., 4 stolnir), Pálína Gunnlaugsdóttir 13 (8 frák., 6 stolnir, 5 stoðs.), Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 10 (3 varin), Svava ósk Stefánsdóttir 9 (6 frák., 6 stoðs.), Rannveig Randversdóttir 4, Halldóra Andrésdóttir 4, Hrönn Þorgrímsdóttir 3. Stig KR: Hildur Sigurðardóttir 18 (11 frák., 5 stoðs.), Guðrún Ósk Ámundadóttir 12, Sigrún Ámundadóttir 11 (9 frák., 4 stolnir), Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 8, Kristín Björk Jónsdóttir 3, Rakel Viggósdóttir 2, Guðrún Arna Sigurðar- dóttir 2, Sigurbjörg Þorsteinsdóttir 2, Þorbjörg Friðriksdóttir 2. Haukar-Snæfell 80-63 (40-32) Stig Hauka: Stig Hauka: Slavica Dimovska 25 (12 stoðs., 6 frák., 6 stolnir), Kristrún Sigurjónsdóttir 22 (4 stolnir), Guðbjörg Sverrisdóttir 13, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 9, Sara Pálmadóttir 4, Bryndís Hreinsdóttir 3, María Lind Sigurðardóttir 2, Margrét Rósa Hálfdanardóttir 2. Stig Snæfells: Sara Sædal Andrésdóttir 16, María Björnsdóttir 15, Detra Ashley 11 (14 frák.), Unnur Ásgeirsdóttir 11 (10 frák.), Gunnhildur Gunnars- dóttir 8, Sara Mjöll Magnúsdóttir 2. Grindavík-Valur 46-44 (27-23) Stig Grindavíkur: Ólöf Helga Pálsdóttir 12 (8 frák.), Ingibjörg Jakobsdóttir 12, Íris Sverrisdóttir 10, Petrúnella Skúladóttir 8 (11 frák., 5 stolnir), Lilja Ósk Sigmarsdóttir 2, Helga Hallgrímsdóttir 2. Stig Vals: Kristjana Magnúsdóttir 15, Berglind Ingvarsdóttir 9, Lovísa Guðmundsdóttir 8 (9 frák., 4 varin), Signý Hermannsdóttir 6 (15 frák., 10 varin), Þórunn Bjarnadóttir 3, Tinna Björk Sigmundsdóttir 3. Hamar-Fjölnir 95-34 ÚRSLIT FÓTBOLTI Það var ekki skorað jafn mikið í Meistaradeildinni í gær- kvöldi og kvöldið áður en línur eru þó farnar að skýrast í nokkrum riðlum. Atletico Madrid og Liverpool berjast á toppi D-riðils og eru þar áfram jöfn eftir 1-1 jafntefli lið- anna á Vicente Calderón-leikvang- inum í Madríd í gærkvöldi. Gestirnir í Liverpool tóku for- ystu í leiknum á 14. mínútu þegar Robbie Keane komst einn inn fyrir vörn Atletico eftir stungusend- ingu Stevens Gerrard og skoraði af öryggi. Það var vissulega ákveð- inn rangstöðufnykur af markinu en það fékk að standa og Keane fagnaði eins og honum einum er lagið. Liverpool náði góðum tökum á leiknum eftir markið og heima- menn í Atletico gerðu sig sjaldan líklega til þess að jafna leikinn í fyrri hálfleik og voru langt frá sínu besta. Yossi Benayoun virtist hafa bætt við öðru marki fyrir Liverpool snemma í seinni hálfleik en markið var rang- lega dæmt af vegna meintrar rangstöðu. Atvikið virt- ist hafa vakið Atlet- ico-menn af værum blundi því eftir það var allt annað að sjá til liðsins. Maniche náði að koma boltan- um í mark Livpool á 56. mínútu en enn og aftur komu aðstoðardómarar við sögu og dæmdu markið, sem var fullkomlega löglegt, af vegna meintrar rangstæðu og Liverpool slapp þar með skrekkinn. Stuttu síðar bjargaði Pepe Reina, mark- vörður Liverpool, vel þegar hann varði gott skot frá Simao í stöng. Simao brást þó ekki bogalistin á 83. mínútu og jafnaði leikinn með góðu skoti og þar við sat. Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, var ósáttur við að missa leikinn niður í jafntefli. „Mér fannst við stjórna leiknum vel í fyrri hálfleik og í hluta af seinni hálfleik og það var svekkj- andi að klára ekki leikinn þá. Við gerðum svo dýr mistök í lokin og borguðum fyrir það fullu verði,“ segir Benitez. Fyrirliðinn til bjargar Skallamark John Terry, fyrirliða Chelsea, nægði Lundúnafélaginu til þess að taka öll stigin gegn Roma á Brúnni. Luiz Felipe Scolari, knatt- spyrnustjóri viðurkennir að sigur Chelsea hafi ekki verið áferðar- fagur en er engu að síður sáttur. „Það mikilvægasta við leikinn gegn Roma voru úrslitin. Þetta var ekkki fallegur leikur,“ segir Scolari. Chelsea komst með sigrinum í þægilega stöðu á toppi riðilsins þar sem Bordeaux vann spútniklið CFR Cluj í hinum leik A-riðils og Chelsea því eina taplausa lið rið- ilsins. Auðvelt hjá Börsungum Eiður Smári gat ekki leikið með Barcelona gegn Basel vegna meiðsla en Börsungar lentu ekki í neinum vandræðum í Sviss. Arg- entínski snillingurinn Lionel Messi gaf tóninn með marki strax á 4. mínútu og þá var ekki aftur snúið. Þegar upp var staðið voru mörkin orðin fimm og Barcelona að spila frábæran fótbolta þessa dagana. omar@frettabladid.is Skrautlegt jafntefli í Madríd Atletico Madrid og Liverpool skildu jöfn, 1-1, í kaflaskiptum leik þar sem danskir línuverðir stálu senunni. John Terry sá til þess að Chelsea tók öll stigin gegn Roma og Börsungar efndu til markaveislu gegn Basel. LEIÐTOGI John Terry sá um að hala inn þrjú stig fyrir Chelsea í gærkvöld. NORDIC PHOTOS/GETTY MARKASKORARI Robbie Keane skoraði fyrsta mark leiks- ins á Vicente Calderón-leikvanginum í gær en þó nokkur rangstöðufnykur var af markinu. Það var samt í takt við aðrar lélegar ákvarðanir hjá línuvarðaparinu að láta mark- ið standa. NORDIC PHOTOS/GETTY KÖRFUBOLTI Birna Valgarðsdóttir fór fyrir sínu liði í tólf stiga sigri Keflavíkur á KR, 72-60, í Iceland Exress deild kvenna. Birna skor- aði 11 af 29 stigum í lokaleikhlut- anum þegar Keflavíkurliðið lagði grunninn að sigrinum. „Það var ekki í boði að tapa fleiri heimaleikjum í vetur,“ sagði Birna eftir leik. „Það var smá pressa á okkur eftir tap í fyrsta heima- leiknum en við héldum haus og unnum góðan sigur,“ sagði Birna sem var rosalega sterk á lokamín- útunum. „Jonni þjálfari sagði við mig fyrir 4. leikhlutann að ég væri reynslumesta manneskjan og að ég mætti ekki hengja haus. Ég hlustaði á hann og tók til minna ráða,“ sagði Birna sem var með 29 stig, 10 fráköst og 4 stolna bolta í gær. Keflavík var með frumkvæðið og forustuna stærsta hluta leiks- ins en KR-liðið gafst aldrei upp og náði alltaf að vinna upp forskot meistaranna. Keflavík var 21-12 yfir eftir fyrsta leikhluta og var með fjögurra stiga forskot í hálf- leik, 34-30. Fyrir lokaleikhlutann var staðan 50-47 fyrir Keflavík en Birna skoraði 8 stig í 13-4 spretti Keflavíkurliðsins en eftir hann var sigurinn nánast í höfn. Jón Halldór Eðvaldsson, þjálf- ari Keflavíkurliðsins var sáttur með sínar stelpur í lokin.“Ég er gríðarlega ánægður með stelpurn- ar. Við erum búin að vera í vand- ræðum með sóknarleikinn á þessu tímabili eftir að við misstum aðal- sóknarmanninn okkar en þetta er allt að koma. Þetta var flott í dag og mér finnst vera stígandi hjá Pálínu í leikstjórnandastöðunni frá degi til dags,“ sagði Jón en Pál- ína átti góðan dag í gær og var með 13 stig, 5 stoðsendingar og 6 stolna bolta. Það var hins vegar Birna sem var maður leiksins. „Það er allt í lagi að skrifa um það að Birna er með gallsteina og blöðrubólgu og ég held að þetta afrek sem hún vann í dag sé miklu stærra en tölurnar sýna. Fólk ligg- ur venjulega fyrir þegar það er svona veikt. Hún var stórkostleg,“ sagði Jón að lokum. Hildur Sigurðardóttir var sterk hjá KR með 18 stig, 11 fráköst og 5 stoðsendingar og þá skiluðu syst- urnar Sigrún og Guðrún Ámunda- dætur saman 23 stigum. Það mun- aði hins vegar miklu að Helga Einarsdóttir var veik og gat aðeins spilað í 5 kraftlitlar mínútur og það munar mikið um hennar fram- lag í vörn og fráköstum. - óój Keflavíkurkonur unnu tólf stiga sigur á KR eftir spennandi leik í Iceland Express-deildinni í gærkvöldi: Birna tók til sinna ráða á lokakaflanum FRÁBÆR Keflavíkurstúlkan Birna Val- garðsdóttir átti góðan leik í gær og var betri en engin á lokakafla leiksins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN > Rúnar Páll áfram með HK HK tilkynnti á heimasíðu sinni í gærkvöldi að Rúnar Páll Sigmundsson myndi halda áfram sem þjálfari meistara- flokks félagssins. Rúnar Páll tók við HK á miðju tímabili í Lands- bankadeildinni síðasta sumar en liðið féll sem kunnugt er í 1. deild. Rúnar Páll, sem er 34 ára gamall, gerði samning við HK til eins árs en hann var áður leikmaður hjá félaginu. Rúnar Páll hefur einnig þjálfað Stjörnuna úr Garðabæ í 1. deildinni.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.