Fréttablaðið - 13.12.2008, Side 2
2 13. desember 2008 LAUGARDAGUR
MANNÚÐARMÁL Brúðuleikhúshátíð
til styrktar börnum í Himalaja-
fjöllum verður haldin í Gerðu-
bergi á morgun, en allur ágóði
rennur til heimilis sem rekið er af
tíbetskum munkum á Indlandi.
„Börnin koma úr afar erfiðum
aðstæðum í hæsta og afskekkt-
asta héraði Himalajafjalla, sem
er á mörkum þess byggilega
sökum kulda og þunns loftlags.
Flest þeirra eru munaðarlaus og
farin að sjá fyrir sér á fjórða ári,
en munkurinn Lama Tenzin býður
þeim vist og menntun á barna-
heimili sínu á Indlandi,“ segir
Guðrún Arnalds hómópati, ein
þeirra sem standa fyrir brúðu-
leikhúsinu á morgun.
„Á Indlandi fara þau á tveimur
jafnfljótum um langan veg í
skóla, svo við reynum að safna
sem mestu fyrir rútu þeim til
handa.“ - þlg / sjá Allt
Brúðuleikhús til hjálpar:
Safna fyrir rútu
ALÞINGI Vegna aukins álags í kjöl-
far fjármálakreppunnar hafa
þóknanir stjórnarmanna í Fjár-
málaeftirlitinu (FME) verið tvö-
faldaðar. Stendur sú ráðstöfun
frá 1. október til ársloka. Tvöföld-
un þóknunar stjórnarformanns-
ins nær aftur til 1. júlí vegna auk-
ins álags á hann frá þeim tíma.
Þetta kemur fram í svari við-
skiptaráðherra við fyrirspurn
Atla Gíslasonar þingmanns VG.
Þóknun almennra stjórnar-
manna var 130 þúsund krónur á
mánuði en nemur nú 260 þúsund
krónum. Þóknun formanns var
260 þúsund krónur en er nú 520
þúsund. Varamenn fengu 90 þús-
und krónur á mánuði en fá 180
þúsund. Frá stofnun FME hefur
varamönnum verið gert að sitja
alla stjórnarfundi og taka þátt í
afgreiðslu mála.
Auk Jóns Sigurðssonar for-
manns sitja Sigríður Thorlacius
lögfræðingur og Stefán Svavars-
son endurskoðandi í stjórn FME.
Varamenn eru Kjartan Gunnars-
son, skrifstofustjóri í viðskipta-
ráðuneytinu, Þuríður Jónsdóttir
héraðsdómslögmaður og Sigríður
Logadóttir aðallögfræðingur
Seðlabankans.
Atli spurðist líka fyrir um
launakjör yfirmanna FME. Fram
kemur að Jónas Fr. Jónsson for-
stjóri hefur 1,7 milljónir í
mánaðarlaun, aðstoðarforstjór-
inn, Ragnar Hafliðason, hefur
1.250 þúsund og fjórir sviðsstjór-
ar eru með á bilinu 855 til 968
þúsund á mánuði. - bþs
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins með sautján hundruð þúsund krónur á mánuði:
Stjórnarlaun tvöfölduð vegna álags
JÓNAS FR.
JÓNSSON
JÓN SIGURÐSSON
Örn Clausen, hæstaréttarlög-
maður og afreksmaður í
frjálsum íþróttum, lést á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni á
fimmtudag, áttræður að aldri.
Örn Clausen
fæddist í
Reykjavík 8.
nóvember
1928, sonur
hjónanna
Sesselju
Þorsteinsdótt-
ur Clausen og
Arreboe
Clausen,
kaupmanns og
bifreiðarstjóra. Hann lauk
lögfræðiprófi frá Háskóla
Íslands árið 1953 og sinnti
lögfræðistörfum á eigin
málflutningsskrifstofu í
Reykjavík frá 1958 til 2007.
Örn átti næstbesta árangur
heims í tugþraut árið 1951.
Eftirlifandi eiginkona Arnar
er Guðrún Erlendsdóttir,
fyrrverandi hæstaréttardóm-
ari. Saman áttu þau þrjú börn,
Örn átti fjóra syni frá fyrra
hjónabandi. Einn þeirra er
látinn.
Örn látinn
ÖRN CLAUSEN
LÖGMAÐUR
Pósthússtræti 5 • 101 Reykjavík
Síðumúla 3-5 • 108 Reykjavík
Þönglabakka 4 • 109 Reykjavík
Hraunbæ 119 • 110 Reykjavík
Hverafold 1-3 • 112 Reykjavík
Eiðistorgi 15 • 170 Seltjarnarnesi
Hamraborg 1-3 • 200 Kópavogi
Litlatúni 3 • 210 Garðabæ
Verslunarmiðstöðinni Firði • 220 Hafnarfirði
Háholti 14 • 270 Mosfellsbæ
Staðsetning pósthúsa
á höfuðborgarsvæðinu:
Staðsetning pósthúsa á Akureyri:
Opið í dag
á pósthúsum á höfuðborgarsvæðinu
og á Akureyri milli kl. 11-17
Skipagötu 10 • 600 Akureyri
Norðurtanga 3 • 600 Akureyri
MENNING Jólalestin, ljósum
prýddir Coca Cola-flutningabíl-
ar Vífilfells aka sinn árlega
hring um höfuðborgarsvæðið í
dag. Það að fylgjast með
Jólalestinni er orðinn fastur
þáttur í jólaundirbúningi
margra fjölskyldna en þetta er í
tólfta sinn sem lestin fer um
höfuðborgarsvæðið.
Lestin leggur af stað frá
Vífilfelli á Stuðlahálsi klukkan
15.30 og fer hún um helstu
hverfi höfuðborgarsvæðisins.
Lestin verður meðal annars í
Spönginni Grafarvogi um
klukkan 16, á Laugavegi um
klukkan 17 og í Smáralind um
klukkan 18. Rúmlega 100
kílómetra löngu ferðalagi
lestarinnar lýkur svo klukkan 20
á sama stað og hún hófst. Nánari
leiðarlýsingu Jólalestarinnar má
finna á slóðinni coke.is - ovd
Jólalest Coca-Cola:
Lestin kemur
með jólalögin
Gylfi, verður fólkið þá ekki
allavega reynslunni ríkara?
„Jú, en maður lifir ekki á því!“
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að
ríkisstjórnin taki fjóra milljarða af fátæk-
asta fólkinu í landinu með kreppuniður-
skurði sínum.
STJÓRNMÁL Formaður Framsóknar
og þingflokksformaður VG vilja
ekki hvetja ráðherrana Árna M.
Mathiesen og Björgvin G. Sigurðs-
son til að segja af sér.
Valgerður Sverrisdóttir hefur
sagt sitt með vantrauststillögunni
og Ögmundur Jónasson vill frekar
að kosið verði.
Formaður Frjálslynda flokksins
vill hins vegar að þeir víki, ásamt
með seðlabankastjóra.
Birgir Hermannsson stjórnmála-
fræðingur segir stjórnarandstöð-
una skylduga til að ræða pólitíska
ábyrgð ráðherra, en hún kunni það
ekki. - kóþ / sjá síður 72 og 74
VG og Framsóknarflokkur:
Ráðherrarnir
segi ekki af sér
EFNAHAGSMÁL Tekjur ríkisins verða 54,6 milljörðum
lægri en áætlað var samkvæmt breytingartillögum
meirihluta frjárlaganefndar Alþingis við fjárlaga-
frumvarp næsta árs. Samkvæmt breytingartillög-
unni verða tekjurnar 395,8 milljarðar en í upphaf-
legu frumvarpi var gert ráð fyrir 450 milljarða
króna tekjum.
Breytingartillagan gerir ráð fyrir 358 milljarða
króna skatttekjum í stað 399 milljarða skatttekna
sem áætlaðar voru í upphaflegu frumvarpi.
Breytingartillaga meirihlutans inniheldur meðal
annars niðurskurðartillögur ríkisstjórnarinnar sem
ná til allra ráðuneyta og undirstofnana þeirra.
Sem dæmi má nefna að framlög til Lánasjóðs
íslenskra námsmanna dragast saman um 1.360
milljónir og framlög til Háskóla Íslands verða 951,1
milljón lægri en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. Það
nemur um tíu prósentum af framlögum ríkisins til
skólans.
Keflavíkurflugvöllur fær 1.153 milljónum króna
minna en fjárlagafrumvarpið sagði til um.
Framlög til reksturs Alþingis verða 215 milljónum
lægri en áætlað var. Hætt verður við framkvæmdir
við Gljúfrastein sem áætlað var að kostuðu 10
milljónir króna og framlag til nýframkvæmda í
Þjóðgarðinum á Þingvöllum dragast saman um 20
milljónir. Þá gerir tillagan ráð fyrir að framlög til
forsetaembættisins dragist saman um 17 milljónir
frá fyrra frumvarpi. - ovd
Tekjur ríkisins 55 milljörðum lægri og mikill samdráttur í útgjöldum:
Háskólinn fær um milljarði minna
FRÁ ALÞINGI Niðurskurðartillögur ríkisstjórnarinnar verða
ræddar á Alþingi á mánudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
LÖGREGLUMÁL Karlmaður frá Kós-
óvó sem handtekinn var hér á
landi í síðasta mánuði er talinn
tengjast stóra skartgriparáninu
sem framið var í Sundsvall í Sví-
þjóð í byrjun september, að því
er fram kemur í sænska blaðinu
Dagbladet. Hann er talinn hafa
sést í nágrenni skartgripaversl-
unar þegar ránið var framið.
Smári Sigurðsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn í alþjóðadeild
ríkislögreglustjóra segir að þrír
karlmenn frá Kosovo hafi verið
handteknir hér á landi í nóvem-
ber. Þeir hafi síðan verið fluttir
til síns heima í lögreglufylgd.
„Við fengum upplýsingar um
það að einn þeirra var talinn hafa
sést í nágrenni við ránsstaðinn
þegar ránið var framið,“ segir
hann. „En það var enginn hand-
tekinn hér vegna ránsins.“
Mennirnir þrír sóttu upphaf-
lega um hæli hér. Þeir þóttu tor-
tryggilegir svo lögregla handtók
þá. Þá höfðu þeir reynt að villa á
sér heimildir og þóttust ekki
þekkjast, þó ýmislegt lægi fyrir
um það. Mennirnir gátu ekki
gefið neinar viðhlítandi skýring-
ar á ýmsu sem þeir voru spurðir
um.
Sænska lögreglan óskaði ekki
eftir að hafa tal af manninum
sem talinn er tengjast skartgrip-
aráninu, sem bendir til að ekki
hafi verið fyrir því nægilega
sterk rök.
Sænska Dagbladet segir að
verðmæti stolnu skartgripanna
hafi verið um 30 þúsund sænskar
krónur eða rúmar 440 þúsund
íslenskar krónur. Ræningjarnir,
sem voru þrír talsins, komust
allir undan. Blaðið segir lögreglu
hafa grunað að ræningjarnir hafi
verið erlendir. Það hafi síðan
fengist staðfest. Lögreglan segist
hafa fengið tilkynningu um að
einn þeirra hafi verið handtekinn
í Madríd. Fingraför hans fundust
í bíl sem ræningjarnir notuðu til
að komast undan eftir ránið.
Ekki hefur enn tekist að bera
kennsl á manninn sem gripinn
var í Madríd, né þjóðerni hans
þar sem hann var með mörg, mis-
munandi skilríki.
Dagbladet segir að handtökur
mannanna á Spáni og Íslandi
styrki þann grun lögreglu að um
sé að ræða alþjóðlegan hring
glæpamanna sem flytji sig milli
landa og fremji afbrot.
jss@frettabladid.is
Meintur skartgripa-
þjófur handsamaður
Karlmaður frá Kósóvó sem handtekinn var hér í síðasta mánuði er talinn tengd-
ur skartgriparáni sem framið var í Sundsvall í Svíþjóð í september. Hann var
handtekinn, ásamt tveimur löndum sínum, og sendur úr landi í lögreglufylgd.
SKARTGRIPIR Mennirnir náðu að brjóta upp skartgripakassa í versluninni í Sundsvall
og hafa á brott með sér verðmæt gullarmbönd. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SJÁVARÚTVEGUR Einar K. Guðfinns-
son sjávarútvegsráðherra telur
niðurstöður stofnmælinga
Hafrannsóknastofnunar á
botnfiskum ekki nægja til að auka
veiðiheimildir á þorski. Þetta kom
fram í kvöldfréttum RÚV í gær.
Í stofnmælingunni, sem lauk 3.
nóvember, mældist heildarvísitala
þorsks sú hæsta frá 1996.
„Þetta eru jákvæðar vísbend-
ingar um stofnstærð þorsksins og
árangur uppbyggingaraðgerða á
síðasta ári en þó er mikilvægt að
bíða eftir niðurstöðu stofnmæl-
inga í mars,“ segir Jóhann
Sigurjónsson, forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar. - jse / ovd
Þorskstofninn að styrkjast:
Niðurskurður
að skila árangri
SPURNING DAGSINS