Fréttablaðið - 13.12.2008, Side 33
LAUGARDAGUR 13. desember 2008
Það er þrennt sem skiptir verulegu máli fyrir seljandann:
1. Að myndin sé ekki seld undir fyrirfram ákveðnu lágmarksverði.
2. Að þurfa ekki að greiða 20% , eða meira í sölulaun.
3. Að seljandinn fái myndina uppgerða um leið og sala fer fram.
Fyrir fjársterka aðila leitum við að góðum verkum gömlu meistaranna
Vinsamlegast hafi ð samband við Pétur Þór í síma 511 7010 eða 847 1600
LÆGRI SÖLULAUN – ÖRUGG ÞJÓNUSTA
Opið í dag laugardag frá kl. 13 til 16
Núna er rétti tíminn að selja málverk fyrir jólin
Ókeypis
verðmat
helgina 13.12. – 14.12. 2008
14:00 Gunni og Felix koma í heimsókn og taka
nokkur vel valin jólalög og sprella fyrir börnin.
15:00 Jól í OZ – Áhorfendur fá að kynnast jólunum
í OZ. Uppáhalds persónurnar okkar eru
allar á sínum stað: Dóróthea, Fuglahræðan,
Pjáturkallinn og Ljónið.
16:00 Páll Óskar syngur nokkur af sínum
vinsælustu lögum og áritar Silfursafnið
sitt í verslunarmiðstöðinni Firði.
Söngkonan Anna Hlín tekur lagið ásamt
hressum dönsurum.
Lalli töframaður galdrar fram töfrandi
sýningu fyrir unga sem aldna.
14:00 Páll Óskar syngur nokkur af sínum
vinsælustu lögum og áritar Silfursafnið sitt
í verslunarmiðstöðinni Firði.
Hressir krakkar úr Sönglist mæta á svæðið og
syngja fyrir gesti.
Börn úr Lúðrasveit Tónlistarskólans í
Hafnarfirði spila nokkur jólalög.
Kvennakór Öldutúns tekur lagið.
15:00 ÚTI-JÓLABALL.
Jólasveinabandið heldur uppi stuðinu.
Laugardagurinn 13. desember13.12.
Sunnudagurinn 14. desember14.12.
ríkisrekstri og auknu valdi stjórn-
málamanna. En hún er heldur ekki
mörkuð óheftri gróðahyggju eða
skeytingarleysi um velferð sam-
félagsins og þeirra sem minna
mega sín. Við viljum samfélag
sem er margbreytilegt og umburð-
arlynt. Samfélag þar sem ólíkir
einstaklingar eiga möguleika á að
blómstra, þar sem flestir eiga
tækifæri til að leita hamingju á
sínum eigin forsendum. Eftir því
sem meira er þrengt að frelsinu
og völd stjórnmála- og embættis-
manna aukast, því minni líkur eru
á að slíkt samfélag verði til.
Við skulum því ekki hverfa frá
þeim grunngildum sem hafa sann-
arlega skilað þjóðinni og öðrum
þeim þjóðum sem lagt hafa þau til
grundvallar gríðarlegum framför-
um, bæði í efnahagslegu og félags-
legu tilliti. Farsælast er að byggja
áfram á þessum grunni en horfast
í augu við að margt þarf að laga í
umgjörðinni og regluverkinu til
þess að hindra að þeir atburðir
endurtaki sig sem nú hafa orðið.
Traustið þarf að endurheimta
Atburðir síðustu mánaða hafa
dregið mjög úr trausti fólksins í
landinu á stjórnmálamönnum,
stjórnskipulaginu og stofnunum
ríkisins. Samkvæmt stjórnskipun
landsins er Alþingi valdamesta
stofnun landsins. Ríkisstjórnin
situr í umboði þess og þiggur vald
sitt þaðan. Samt sem áður hefur
þróunin verið sú að framkvæmda-
valdið hefur verið ráðandi í sam-
skiptum sínum við Alþingi. Sú
umræða hefur farið vaxandi að
Alþingi sinni ekki nægjanlega vel
eftirliti með framkvæmdavald-
inu. Allur vafi um sjálfstæði
þingsins gagnvart framkvæmda-
valdinu grefur undan tiltrú
almennings á stjórnskipulaginu.
Þegar svo við bætist sú gremja og
heift sem fylgir hruni í efnahags-
lífinu er rétt að ígrunda hvort
ekki sé nauðsynlegt að gera breyt-
ingar á stjórnskipuninni í þeim
tilgangi að skerpa á ábyrgð
einstakra þátta ríkisvaldsins og
stofnana þess. Slíkar breytingar
kunna að vera tímabærar og nauð-
synlegur liður í að endurheimta
traust almennings á stjórn-
skipulaginu.
Einn þáttur slíkrar endurskoð-
unar ætti að okkar mati að lúta að
kosningafyrirkomulaginu. Við
eigum að spyrja okkur þeirrar
spurningar hvaða aðferðir henta
til þess að velja þá einstaklinga og
flokka sem við treystum best til
að fara með þau sameiginlegu
mál. Markmiðið á að vera að efla
tengsl á milli kjósenda og kjör-
inna fulltrúa, skerpa á ábyrgð
þeirra sem fara með vald, jafn-
framt því að styrkja eftirlitshlut-
verk einstakra þátta ríkisvaldsins
með hver öðrum.
Þrátt fyrir að samfélag okkar
verði upptekið af því að bregðast
við þeim bráðavanda sem nú
steðjar að er nauðsynlegt að við
horfum til þessara mikilvægu
grunnþátta í stjórnskipulaginu í
þeirri endurreisn íslensks efna-
hagslífs sem fram undan er.
Höfundar eru alþingismenn fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.