Fréttablaðið - 13.12.2008, Blaðsíða 45
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég ætla að vakna snemma til að
ná nokkrum súrrealískum ljós-
myndum í ljósaskiptunum,“
byrjar Vignir Rafn Valþórsson
þegar forvitnast er um fyrirætl-
anir hans í dag. Það er bara
byrjunin.
Eftir myndasnúninginn hefst
undirbúningur fyrir hlutverk hans
sem André Breton í Fridu Kahlo
sem frumsýnt verður í vor. Eftir
hádegi kveðst hann svo ætla að
mæta á Austurvöll með ilmandi
latte. „Maður verður að sýna sig
og kalla „já“ á réttum tíma eins og
hinir sauðirnir,“ segir hann. „Jafn-
vel þó að maður sé ekkert sam-
mála ræðumanninum.“
Svo byrjar stuðið, æfing með
leikarabandinu Heimilisrónar.
„Ekkert er jafn gott til að gleyma
kreppunni og ærlegur trommu-
sláttur,“ segir Vignir Rafn sem
eftir æfinguna ætlar í matarboð
með Karabíanklúbbnum, aðdá-
endafélagi FM Belfast, og á tón-
leika á eftir á Q-bar. „Vonandi verð
ég búinn að ná mér eftir harð-
sperrurnar sem ég fékk í sigurleik
Þjóðleikhússins yfir Borgarleik-
húsinu í fótbolta í vikunni því það
verður dansað,“ segir hann bros-
andi og bætir við að eftir slíka
geðveiki geti hann einungis vonað
að nóttin fari fögrum höndum um
hann.
Á morgun ætlar Vignir Rafn á
hádegisfund leikfélagsins Vér
morðingjar og jafnvel „rölta um
gráa en undarlega fagra Reykja-
vík á eftir“ eins og hann orðar það
sjálfur. „Svo er matur hjá mömmu
í Kópavoginum, vonandi steik,“
segir hann glaðlega og kveðst ætla
að slútta helginni með sörubakstri
hjá Birni Hlyni meðleikara sínum
í Sumarljósi sem frumsýnt verður
um jólin. gun@frettabladid.is
Ekkert eins gott núna og
ærlegur trommusláttur
Helgin er þaulskipulögð hjá leikaranum Vigni Rafni Valþórssyni. Hún fer meðal annars í mótmæli, smá-
kökubakstur, þungarokk og matarboð. Pottþétt prógramm sem getur varla klikkað.
Vignir Rafn var að koma af æfingu á jólaleikriti Þjóðleikhússins þegar ljósmyndarinn hitti hann á rölti um gráa en undarlega fagra
Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
JÓLABALL verður haldið á Ingólfstorgi í dag klukkan 16.00. Ballið
er á vegum Ölgerðarinnar og fram koma Ómar Ragnarsson, Maggi
Kjartans og Helga Möller. Tilvalið tækifæri til þess að dansa í
kringum jólatréð utandyra.
d
GULL-ÚRIÐ MJÓDDINNI
Axel Eiríksson Álfabakka 16
úrsmíðameistari sími 587 4100
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
Patti húsgögn
landsins mesta úrval af sófasettum
Smíðum eftir þínum þörfum
Íslensk framleiðsla
Svefnsófar/ Stakir sófar
Hornsófar/Tungusófar
kr.149.900,-
verð frá
Bonn Aspen Verð Kr. 313.900,-
Nabucco