Fréttablaðið - 13.12.2008, Side 66
58 13. desember 2008 LAUGARDAGUR
Hvenær varstu hamingjusöm-
ust? Þegar dóttir mín fæddist.
Ef þú værir ekki leikkona,
hvað myndirðu þá vera? Söng-
kona eða garðyrkjukona …
Hvað er það dýrasta sem þú
hefur nokkurn tímann keypt
þér? Föt og aftur föt … og skór
frá Malene Birger.
Hvað er það versta sem nokk-
ur hefur sagt við þig? Það er
alltaf erfitt þegar manni er bent
á galla sína.
Ef þú byggir ekki í Reykjavík,
hvar myndirðu vilja búa? Í
Köben.
Uppáhaldsleikari/leikkona
allra tíma og af hverju? Er ekki
mikið fyrir „uppáhalds“ en ég
fíla til dæmis Brad Pitt, hann
sannaði sig frá sæta blond-
stráknum.
Draumahelgin þín í einni setn-
ingu? Núna væri það frí alla
helgina og jólastúss með manni
og barni.
Hvert er versta starf sem þú
hefur nokkurn tímann gegnt?
Unglingavinnan … var sú eina
sem lenti í hóp þar sem ég þekkti
engan og ég var bældur ungling-
ur þannig að …
Uppáhaldsstaðurinn þinn á
jörðunni? Mývatn, 101 R., Köben
og Barcelona.
Hvers konar tónlist hefur
mest áhrif á þig og hvaða lag
hlustarðu mest á í dag? Ég er
alæta á tónlist en klassísk tón-
list fer beint inn í hjartað á mér.
Ef þú ættir tímavél, hvert
myndirðu fara og af hverju? Ég
myndi vilja heimsækja miðaldir
og syngja í kór, víkingana og
fara í gott partí, vera tískudrós
á Viktoríutímabilinu og aðeins
hitta hippana …
Er eitthvað sem heldur fyrir
þér vöku á nóttunni? Ég fer oft
að vinna þegar ég er lögst upp í
rúm og þá er ég lengi að kúpla
mig niður.
Ef þú gætir breytt einhverju í
fortíð þinni, hvað myndi það
vera? Ég myndi ekki ferma
mig.
Hvenær fékkstu síðast hlátur-
skast? Á æfingu … Frikki Frikk
drepur mig.
Áttu þér einhverja leynda
nautn? Já.
Uppáhaldsbókin þessa stund-
ina? Afleggjarinn eftir Auði
Ólafs.
Hvaða núlifandi manneskju
lítur þú mest upp til? Æi, þetta
er allt meira og minna frábært
fólk.
En hvaða núlifandi manneskju
þolirðu ekki? Alla hálfvitana.
Uppáhaldsorðið þitt? Apar-
ass.
Hvaða eitt atriði myndi full-
komna lífsgæði þín? Aukaher-
bergi.
Hvaða einu lagi verður þú að
taka „cover“ af áður en þú
deyrð? My baby or never.
En hvaða hlutverk myndir þú
verða að leika áður en þú deyrð?
Hexíu de Trix.
Hver verða þín frægu hinstu
orð? Why talk about it.
Hvað er næst á dagskrá?
Sörubakstur … Frumsýning á
Sumarljósi 26.des., æfingar á
Kardemommubænum og Frida,
viva la vida í Þjóðleikhúsinu.
Þoli ekki hálfvita
Ester Talía Casey hefur í nógu að snúast á sviðinu í vetur, en hún leikur í
Sumarljósi og svo kemur nóttin, Kardemommubænum og Frida, viva la vida
á fjölum Þjóðleikhússins. Anna Margrét Björnsson fékk hana í þriðju gráðu
yfirheyrslu.
MYNDI VILJA HEIMSÆKJA MIÐALDIR: LEIKKONAN ESTER TALÍA CASEY FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN: Esther Talia Casey
STARFSFERILL Í HNOTSKURN:
Hóf ferilinn í Grease í Borg-
arleikhúsinu, lék svo með
sjálfstæðum leikhópum þaðan
norður á Akureyri og þaðan í
Þjóðleikhúsið…..
FÆÐINGARÁR OG HVAÐ GERÐ-
IST MARKVERÐAST Á ÞVÍ ÁRI:
1977. Elvis lést…eða það segja
þeir.
■ Á uppleið
Póst-rokk. Jólastemningin. Loksins
mætt með fallegum póstkortasnjó og
gleði í hjarta.
Ódýrar jólagjafir. Í stað þess að
bíða í röðum fyrir utan búðirnar fara
Íslendingar að spá í heimaföndur og
persónulegar gjafir. Átti andi jólanna
ekki einmitt að vera svona?
Glansandi augnskuggi. Tísku-
hönnuðir boða málm-skotin augu
fyrir vorið, hvers vegna ekki að byrja
núna?
Kynlíf. Tilvalin afþreying í skamm-
deginu, ástæður fyrir að stíga upp úr
bólinu fara líka að verða hverfandi!
■ Á niðurleið
Tískublaður. Fólk sem ræðir ekki
um annað en nýjustu strauma og
týnir sálunni í yfirborðskenndinni.
Pitsur og gos.
Óhollt, fitandi
og aðallega
alveg rándýrt
spaug. Nú er
kominn tími til
að stöðva slíka
slæma ávana.
Jólaskrauts-ofgnótt. Við vitum að
mínímal svart-hvíta skrautið var hroði,
en engin ástæða til að veggfóðra
hvern krók og kima
heima með glyðruleg-
um ljósum.
Sólarpúður. Það lítur
hreinlega hörmulega
út í vetrarbirtunni
og mun betra
að leyfa fölu
litarafti og bleik-
um kinnum að
skína í gegn.
Rakvélar.
Jólasveinninn
var skeggjaður og
flestir karlmenn
taka sig vel út með
fallega loðinn hýj-
ung. Segið bless við
metró-manninn,
strákar!
MÆLISTIKAN