Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.12.2008, Qupperneq 90

Fréttablaðið - 13.12.2008, Qupperneq 90
82 13. desember 2008 LAUGARDAGUR FÓTBOLTI Öll fjögur ensku félögin í Meistara- deildinni, Man. Utd, Liverpool, Arsenal og Chelsea, komust sem kunnugt er áfram í 16- liða úrslit keppninnar en dregið verður um hverjir mótherjarnir verða eftir tæpa viku. Man. Utd og Liverpool unnu bæði sína riðla og mótherjar þeirra í drættinum verða því félög sem lentu í öðru sæti í hinum riðlunum að hinum ensku félögunum frátöldum. Einnig geta lið úr sama riðli ekki mætt hvert öðru í 16- liða úrslitunum. United og Liverpool geta því mætt Sporting, Inter, Lyon eða Real Madrid og United getur auk þess mætt Atletico Madrid og Liverpool getur mætt Villarreal. Möguleikinn á að United geti mætt Real Madrid hefur vakið mikla athygli en félögin áttu í hatrammri deilu vegna Cristiano Ron- aldo síðasta sumar þegar Madrid-ingar gengu hart fram í að fá snillinginn í sínar raðir. Síðan þá hefur verið stirt á milli forráðamanna félag- anna og nú síðast í gær skaut Ramon Calderon, forseti Real Madrid, föstum skotum á Ron- aldo sjálfan og kvað hann eiga mesta sök á fjaðrafokinu á milli félaganna. Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri United, viðurkenndi að hann hefði vissu- lega leitt hugann að því að geta mætt Real Madrid í 16-liða úrslitunum. „Það yrði án nokkurs vafa mikil og skemmtileg veisla. Ég hlakka allavega til að geta fengið mér te og kexkökur með Ramon Calderon,“ segir Ferguson. Arsenal og Chelsea urðu að sætta við annað sætið í riðlum sínum og mæta því toppliðum í hinum riðlunum að Man. Utd og Liverpool frátöldum. Lundúnafélögin geta því mætt Barce- lona, Panathinaikos, FC Bayern eða Juventus og Arsenal getur auk þess mætt Roma og Chelsea getur mætt Porto. - óþ Miklar vangaveltur eru um hugsanlega mótherja ensku félaganna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar: Mætast vinafélögin Man. Utd og Real? BARÁTTA UTAN VALLAR Man. Utd og Real Madrid áttu í rimmu út af Cristia- no Ronaldo síðasta sumar. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Hinn 38 ára gamli hollenski markvörður, Edwin van der Sar, er búinn að framlengja samning sinn við Man. Utd til eins árs eða til loka leiktíðar 2011. „Skap hans, fagmennska og frammistaða hefur ekkert breyst síðan hann kom til okkar,“ sagði Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd. „Það liggur ljóst fyrir að þetta verður samt hans síðasti samn- ingur hjá okkur. Hann hefur staðið sig hreint frábærlega hérna hjá okkur.“ Van der Sar kom til United frá Fulham árið 2005 og kostaði þá 5 milljónir og tryggði United sigur í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð er hann varði lokavíta- spyrnuna frá Nicolas Anelka. - hbg Edwin van der Sar: Framlengdi við Man. Utd VAN DER SAR Verður í marki United á næstu leiktíð. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES NFL Besta liðið framan af leiktíð var Dallas Cowboys en heldur hefur hallað undan fæti hjá liðinu síðustu vikur og liðið á nú í harðri baráttu um að komast í úrslita- keppnina. Það eykur ekki á líkur kúrekanna að komast í úrslita- keppnina að ósætti er á milli þriggja stjarna liðsins, leikstjórn- andans Tony Romo, innherjans Jasons Witten og útherjans skrautlega Terrells Owens. Owens er sagður hundfúll út í þá félaga og hefur sakað þá um að hanna kerfi sín í milli án þess að hafa hann með í ráðum. Romo og Witten eru nánir vinir og her- bergisfélagar á ferðalögum. - hbg NFL-deildin: Sundrung hjá Dallas FÓTBOLTI Dagar Brasilíumannsins Adriano gætu senn verið taldir hjá Inter en framherjinn gerði sig enn eina ferðina sekan um agabrot þegar hann mætti of seint og í slæmu líkamlegu ásigkomulagi á æfingu í gær. Knattspyrnustjórinn José Mourinho lagði saman tvo og tvo og rak Adriano umsvifalaust heim af æfingunni, í annað skiptið á stuttum tíma, enda er Adriano þekktur fyrir að taka gjarnan einum of hressilega á því utan vallar og nýtir hvert tækifæri til þess að fara út á lífið. Adriano er samningsbundinn Inter til loka keppnistímabilsins árið 2010 en samkvæmt heimild- um ítalskra fjölmiðla munu forráðamenn Inter vera búnir að fá sig fullsadda af hegðun Adriano og eru tilbúnir til að hlusta á kauptilboð í kappann strax í janúar. - óþ Adriano enn til vandræða: Var rekinn heim af æfingu VANDRÆÐAGEMLINGUR Adriano var í gær rekinn heim af æfingu í annað skiptið á stuttum tíma. NORDIC PHOTOS/GETTY Myndform ehf • Trönuhraun 1 • Sími: 534 0400 • www.myndform.is • myndform@myndform.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.