Réttur - 01.06.1942, Blaðsíða 16
numdu héruöum lands vors: körlum og konum,
bömum og gamalmennum, bræðrum vorum og
systrum.
Þeir hafa gert þaö aö markmiöl sinu aö hneppa
þjóöir Úkraínu, Bjelórússlands, Eystrasaltslýöveld-
anna, Moldaviu, Krím og Kákasíu í ánauö eöa út-
rýma þeim. Það eru ekki nema þorparar og illmenni,
sem misst hafa alla sómatilfinningu og eru orönir
að skepnum, sem geta leyft sér slíka meðferð á sak-
lausu og vopnlausu fólki.
En þar með er ekki allt talið. Þeir hafa þakið
Evrópu gálgum og fangabúðum. Þeir hafa komið á
„gísla“ aöferðinni, þeir skjóta og hengja alsaklausa
óbreytta borgara, sem teknir hafa verið ,,gíslar“
vegna þess aö' afstýrt hefur verið, að einhver þýzk
skepna nauögaöi kpnum eöa rændi fé af óbreyttu
fólki; þeir hafa gert Evrópu að þjóðafangelsi — og
þetta kalla þeir „Hina nýju skipan Evrópu‘“.
Vér vitum hverjir það eru, sem sekir eru um
þessa glæpi, þessir höfundar „hinnar nýju skipun-
ar“ — allir þessir nýbökuöu allsherjarlandsstjórar,
landshöfðingjar, foringjar og undirforingjar. Nöfn
þeirra eru kunn þúsundum pyndaöra mannai. Þesslr
slátrarar mega vita þaö, aö þeir munu ekki kom-
ast undan hinni hefnandi hendi hinna misþyrmdu
þjóöa.
Hið þriðja hlutverk vort er að eyöileggja „hina
nýju skipan Evrópu“ og refsa höfundum hennar.
Félagar! Viö heyjum mikið frelsisstríö. Vér heyj-
um þaö ekki einir, heldur í sambandi við banda-
menn vora. Því mun ljúka með sigri yfir hinum
leiðu fjendum mannkynsins, hinum nazísku landa-
ránsmönnum Þýzkalands. Á gunnfána þessa frelsis-
stríös er letraö:
Lengi lifi sigur baráttubandalags Englands, Ráð-
stjómarríkjanna og Bandaríkjanna!
80