Réttur - 01.08.1952, Page 7
RETTUR
199
unarfjötrum, sem hún hefur reyrt fiskútflutninginn í.
íhaldið, Framsókn og Alþýðuflokkurinn hafa staðið saman
um að fella frumvarp það, sem Sósíalistaflokkurinn nú
hefur flutt á þrem þingum um að gefa fiskútflutninginn
frjálsan.
Nú fyrirskipar rikisstjórnin stórminkun framleiðslunnar
og útflutningsins, með þeim afleiðingum, sem búast má við
af því: atvinnuleysi og rýrð kjör sjómanna, sem voru þó
nógu slæm fyrir, — minnkandi framleiðsla, minnkandi út-
flutningur, minnkandi innflutningur, að svo miklu leyti sem
við vinnum sjálfir fyrir honum, — og þessvegna versnandi
afkoma þjóðarinnar, — nema hún taka að lifa á því að
þiggja mútur og selja sjálfa sig og börn sín sem þræla og
ambáttir fyrir Ameríkana.
Markaöir eru nægir fyrir allar fiskafurðir íslendinga.
Það er einokun hinnar amerísku leppstjórnar ein sem hindr-
ar hagnýtingu þeirra.
Og það er ákveðið markmið, sem hlýtur að vaka fyrir
hinni amerísku yfirstjórn íslands með svona óskammfeil-
inni pólitík gagnvart efnahag og afkomu þjóðarinnar. Og
við sjáum hvert það markmið er, þegar við athugum af-
leiðingarnar af þessari pólitík ríkisstjórnarinnar. En þær
eru þessar eða verða, ef hernámsflokkarnir sigra:
Fólkið flýr sjávarútveginn. Það leitar í hemaðarvinnu
hjá Ameríkönum eða stóriðjuþrældóm hjá amerískum auð-
hringum. Sívaxandi hluti Islendinga verður þannig háður
amerísku auðvaldi um atvinnu, en hefur ekki þjóðlega
bjargræðisvegi að byggja á. Efnahagsleg tök amerísks auð-
valds vaxa með þjóðinni. Skoðanakúgun og stjórnmála-
ofsóknir, sem hin hálf-fasistísku amerísku stjómarvöld
eru þegar alræmd fyrir, færast í aukana. Sjálf íslenzka
þjóðin á svo í vaxandi mæli gjaldeyrisöflim sína undir at-
vinnu hjá Ameríkönum, þar sem þeir skammta kaupgjald
með harðstjórn og fyrirskipa gengið á íslenzkri krónu með
harðvítugum fyrirmælum.