Réttur


Réttur - 01.08.1952, Síða 13

Réttur - 01.08.1952, Síða 13
RETTUR 205 hlutverki, meðan „framsveitin“ var aðeins ein, meðan hún varð að gegna framsveitarhlutverki sínu óstudd að kalla. En þetta var í þann tíð. Nú er öldin orðin önnur. Nú þegar nýjar „framsveitir“ eru komnar til skjalanna allt frá Kína og Kóreu til Tékkóslóvakíu og Ungverjalands þar sem eru alþýðuveldin — nú er orðið auðveldara fyrir flokk vorn að berjast, ójá, og starfið er farið að ganga líflegar. (Kröft- ugt og langvarandi lófatak). Þeir kommúnistaflokkar, lýðræðisflokkar eða verka- manna- og bændaflokkar, sem enn eru ekki komnir til valda og starfa með harðstjóm auðvaldsins yfir höfði sér, eiga sérstaka athygli skilið. Fyrir þá er náttúrlega erfiðara að starfa. En það er ekki eins erfitt fyrir þá að starfa eins og það var fyrir oss, rússnesku kommúnistana á dögum keisarans, þegar hið smæsta spor fram á við var lýst þyngsti glæpur. En rússnesku kommúnistarnir stóðu stað- fastir og létu ekki erfiðleikana vaxa sér í augum, og þeir unnu sigur. Svo mun einnig vérða um þessa flokka. Hvers vegna mun ekki verða eins erfitt fyrir þessa flokka að starfa og var fyrir rússnesku kommúnistana á zartím- anum? Fyrst af því, að þeir hafa fyrir augum fordæmi um baráttu og sigra, slík sem gefur að líta í Ráðstjórnarrikj- unum og alþýðuveldunum. Af því leiðir að þeir geta lært af mistökum og áröngrum þessara landa og auðveldað með því móti sitt eigið starf. Þar næst af því, að auðmannastéttin — aðalóvinur frels- ishreyfingarinnar — er sjálf orðin önnur, hefur tekið gagn- gerum breytingum, er orðin afturhaldssamari, hefur misst tengslin við alþýðuna og hefur af þeim. sökum veikt að- stöðu sína. Auðvitað eiga þessar aðstæður einnig að gera hinum byltingarsinnuðu og lýðræðissinnuðu flokkum létt- ara að starfa. (Kröftugt lófatakj, • Áður fyrr gat auðmannastéttin leyft sér að þykjast frjáls- lynd, hún hélt í heiðri botgaraleg lýðréttindi og vann sér

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.