Réttur


Réttur - 01.08.1952, Síða 22

Réttur - 01.08.1952, Síða 22
214 RETTUR ið þegar vitað var, að kjötinu yrði annars ekki skipað upp fyrir sunnan. Sveinn hélt áfram að ræða um hreppsbúið og tíndi til dæmi eftir dæmi um afglöp oddvitans. Hann var búinn að tala sig upp í hita og sást lítt fyrir. Sumar athugasemdir hans fannst Jóa vafasamar og þær verkuðu á hann eins og óvænt vatnsgusa í andlitið. Hann heyrði reiðikurr í saln- um og fannst Sveinn hafa talað af sér. Þegar Sveinn hélt áfram að úthúða bústjóranum og kaupafólkinu fyrir svik- semi, þá fannst honum vopnin vera að snúast í höndum hans og líkast því sem eitthvað uggvænlegt væri í aðsigi. Sveinn fór að tala um kýmar. Ýmist hefðu verið keyptar gamlar, aflóga kýr eða misheppriaðir gripir, sem hefðu átt að fara beint undir hnífinn. Hann lýsti þessum kýrkaup- um nánar og tók dæmi. Jóa var ekki farið að lítast á blik- una. Ekki gátu blessaðar skepnurnar að því gert, þótt ekki væri allt sem skyldi. Hann hafði sjálfur komið í fjósið og séð að kýrnar litu yfirleitt vel út, þótt sumar væru ber- sýnilega gamlar og lélegar, og hann taldi sig hafa dálítið vit á kúm. Hann var hissa á Sveini að tala svona og sárnaði orð hans. Allt í einu hrökk Jói við eins og hann hefði verið stunginn. Sveinn hafði nefnt rauðskjöldu hans, kúna sem hann hafði selt oddvitanum fyrir búið í fyrra. ,,Mér er það sérstaklega kunnugt, að kýrin, sem oddvit- inn keypti af Jóa í Dalskoti var hinn mesti bölvaður galla- gripur. Hún var að vísu ekki gömul, en hafði fengið doða við hvem burð og aldrei komizt í neina nyt. Hún var til þess eins að lóga henni, en þó hefur henni auðvitað hrakað enn síðan búið tók við henni. Auk þess var það sérstakur glópsháttur að láta Jóa í Koti, sem allir þekkja, vefja sér um fingur eins og oddvitinn gerði, því auk alls annars var kýrin kálflaus í þokkabót. Verðið tala ég ekki um, það var sú fjarstæða". Það suðaði fyrir eymnum á Jóa, hann hafði hjartslátt og hendur hans titruðu. Honum lá við andköfum eins og

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.