Réttur


Réttur - 01.08.1952, Page 28

Réttur - 01.08.1952, Page 28
220 RETTUB. félög frammi fyrir spurningunni um það, hvort hafið skyldi raunverulegt verkfall eða framkvæmd þess frestað, þar til séð yrði hvernig málin snerust fyrir sunnan. Þess ber að gæta að á starfssviði þessara félaga var engan stóratvinnu- rekstur að stöðva, sem verulega tilfinnanlegt hefði verið fyrir atvinnurekendastéttina í heild. Stjórn Verkamanna- félagsins, sem forystu hafði í öllum þessum málum hér á Akureyri, hikaði þó ekki. Hún leit svo á, að öllum félögum, sem þátttakendur væru í þessum samtökum sem fullgildir samningsaðilar, bæri að taka fullan, virkan þátt í barátt- unni. Á fundi í félaginu 30. nóv. lagði stjórnin til að verk- fallið kæmi til fullra framkvæmda daginn eftir og var það samþykkt einróma. Var þar kosin verkfallsstjórn. Eining kaus einnig verkfallsstjóm og síðar bættust þar við full- trúar þeirra félaga, sem gerðu samúðarverkfall. Verkfallið hófst svo á tilsettum tíma og stóð jafnlengi og í Reykjavík. Engin veruleg tilraun var gerð til verk- fallsbrota hér í bæ, enda strangur vörður hafður allan sólarhringinn. Formaður Verkamannafélagsins,Björn Jóns- son, hafði verið kosinn í aðalsamninganefnd félaganna, en vegna verkfallsins kom hann hingað norður strax að loknu Alþýðusambandsþingi og hafði á hendi forystu verkfalls- stjómarinnar. Eftir því sem á leið og verkfallið varð víð- tækara uxu verkefni verkfallsstjórnarinnar. Til hennar beindist stöðugur straumur beiðna um undanþágur, einkum i sambandi við afgreiðslu bensíns og annað þ. h. Fæstum beiðnum var svarað játandi. Frá byrjun var leyfð afgreiðsla á olíu og kolum til húsakyndinga. Þótt ekki væru nein vem- leg brögð að tilraunum til verkfallsbrota, var þó um ýmis- konar smápot að ræða svo að hafa þurfti sifellt vakandi auga á öllu. Við Laxárvirkjunina kom til dálítilla árekstra. Verka- menn af Akureyri lögðu þar niður vinnu á sama tíma og verkamenn í bænum. Þar sem hér var um verkfall að ræða hafði enginn leyfi til að taka upp vinnu í stað þessara

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.