Réttur


Réttur - 01.08.1952, Page 30

Réttur - 01.08.1952, Page 30
222 R É T T U R ferða, því að verkfall í iðnaðinum hérna á þessum tíma hefði komið mjög við eigendur verksmiðjanna. Hinsvegar er rétt að taka það fram, að Iðju-fólkið brást mjög drengi- lega við er til þess var leitað eftir fé í verkfallssjóð. Sveinafélag járniðnaðarmafina, Sjómannafélag Akureyr- ar og Vélstjórafélag Akureyrar samþykktu samúðarverk- fall og voru öll komin með i verkfallið áður en því lauk. Lögðu þau til menn í verkfallsstjóm og til verkfallsvörslu. Sérstaklega ber að geta öflugrar þátttöku járniðnaðar- manna. Var það orðinn æði mikill fjöldi manna, sem að lokum hafði komið til starfa á einn eða annan hátt. Lögðu margir mjög hart að sér og kom þarna fram mikill bar- áttuvilji og félagsþroski. Bílstjórafélag Akureyrar fékk sömu tilmæli og hin fé- lögin, en fór undan í flæmingi, þar til það var loks fellt daginn áður en samningar tókust, að fara í samúðarverk- fall. Voru þó flestir bílar stöðvaðir vegna bensínleysis. Hafði félagið lítinn sóma af þessu máli. Segja má að samúð bæjarbúa almennt með verkfalls- mönnum hafi verið mikil. Launþegar við hin ýmsu störf skildu það, að þarna var verið að berjast fyrir þeirra hags- munum. Reynslan hafði kennt þeim, að verkalýðssamtökin hafa forystuna í hagsmunabaráttu launþega almennt. Strax í upphafi annarrar verkfallsvikunnar var hafin hér söfnun í verkfallssjóð. Var strax hafin úthlutun fjár er nokkuð hafði safnast. Þörfin var mjög brýn, því að atvinna hafði verið rýr að undanförnu. Söfnuðust alls kr. 14.610.00 í verkfallssjóðinn. Var úthlutað til 50 heimila. Ekki varð þess vart undir lokin, að neitt lát væri á bar- áttuhug verkfallsmanna. En þótt þeir væru ekki ánægðir með þá samninga sem tókust, þá gerðu þeir sér ljóst, að ekki þýddi að reyna að halda lengur áfram. Það olli þó nokkurri gremju í garð samninganefndarinnar, að hún lét undir höfuð leggjast, að tryggja félögunum utan Reykja- vikur sömu útsvarshlunnindi og félögunum í Reykjavík.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.