Réttur


Réttur - 01.08.1952, Page 40

Réttur - 01.08.1952, Page 40
232 RÉTTUR í ársbyrjun 1952 var iðnaðarframleiðslan í líetúvsku sovétlýð- veldinu 140%, lettneska sovétlýðveldinu 260% og eistneska sovét- lýðveldinu 310% meiri en fyrir stríð — en á sama tíma var iðn- aðarframleiðslan í Noregi, Hollandi og Belgíu aðeins örlítið meiri en fyrir stríð, og það enda þótt sovétlýðveldin hafi orðið fyrir langtum meiri stríðseyðingu en þau. Vert er að veita því athygli að í hinu gamla Lettlandi auðvalds- skipulagsins jókst iðnaðarframleiðslan einungis um 50% frá 1913 til 1939 samkvæmt hinum ýktu hagskýrslum stjórnendanna sjálfra, en í hinu nýja Lettlandi jókst iðnaðarframleiðslan á ellefu árum — frá 1940 til 1951 — um 260%, þrátt íyrir þá eyðingu sem styrjöldin og hernám óvina ullu. Svipuð afrek hafa verið unnin í þróun landbúnaðarins. Síðan samyrkjubúskapurinn sigraði í Sovétríkjunum hefur land- búnaðinum í sovétlýðveldunum stöðugt farið fram. Samyrkju- skipulagið er einn mesti ávinningur sovétstjórnarfarsins, vegna þess að það leiddi bændaalþýðuna inn í starfið að uppbyggingu sósíalismans, skapaði nýja, einstæða möguleika fyrir framþróun allra greina landbúnaðar og skapaði einnig skiiyrði til stöðugra umbóta á hag og menntun milljóna bænda. Árangurinn er að nú höfum við í öllum sovétlýðveldunum sósíalistiskan landbúnað á grundvelli stórframleiðslu, sem sendir mikið magn á markað, beitir nýjustu aðferðum búnaðarvísinda og er birgari að síðustu gerðum véla en landbúnaður í nokkru oðru landi. Þetta er hægt að sjá í sérhverju lýðveldi í Sovétríkjunum en ég ætla aftur að taka dæmi af austlægu lýðveldunum, þar sem land- búnaður var eins og alkunnugt er mest á eftir tímanum áður en sovétstjórnin komst á, þar vissu menn ekki einu sinni að ein- földustu jarðyrkjuvélar væru til. Nú starfa á ökrum samyrkju- og ríkisbúa í sósíalistisku sovét- lýðveldunum Úsbekistan, Kasakstan, Kirgisistan, Túrkmenistan og Tajikistan 121.000 dráttarvélar (15 hestöfl að meðaltali), 23.000 uppskeruvélasamstæður, 102.000 vélar til að sá, rækta og skera upp baðmull, og hundruð þúsunda annarra landbúnaðarvéla og verk- færa. Hvað snertir tæknibúnað er landbúnaðurinn í austlægu sovétlýðveldunum fremri háþróuðustu auðvaldslöndum Evrópu. Tökum dráttarvélafjöldann til dæmis. í Sovét-Úsbekistan eru 14 dráttarvélar á hverja þúsund ræktaða hektara en í Frakklandi eru einungis sjö dráttarvélar og á Ítalíu aðeins fjórar dráttarvélar á jafn stóra landspildu og þær aflminni. Varla er þörf á að taka það fram að tala dráttarvéla í notkun í austrænum löndum utan

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.