Réttur - 01.08.1952, Side 45
RETTUR
237
Stalín stefnuna í þjóðernamálunum og gerði þannig mögulegan
algeran og,.endanlegan ósigur herraþjóðar-þjóðrembings, borgara-
legrar þjóðernisstefnu og borgaralegrar heimsborgarahyggju.
Hin mikla þjónusta, sem foringi flokks okkar, félagi Stalín,
innti af höndum, er að með viturlegri forystu sinni gerði hann
mögulega endurfæðingu og einstæðan vöxt efnislegs og andlegs
þróttar allra þjóða lands okkar (lófatak), að hann sameinaði þær
órjúfandi tengslum bróðurlegrar vináttu og beindi átökum þeirra
að einu marki — eflingu máttar lands okkar og sigri kommúnism-
ans. (Langvinnt lófatak).
Árangursrík þróun sósíalistiskra þjóða eins og fjölþjóðaríkis
okkar hefur gífurlega alþjóðlega þýðingu.
Af dæmi okkar fær verkalýðsstéttin í auðvaldslöndunum eygt
sína eigin leið til frelsunar undan arðráni, fátækt og atvinnuleysi,
frá vaxandi hættu á því að fasisma verði komið á.
Af dæmi okkar fá þjóðir nýlendnanna og hálfnýlendnanna eygt
sína eigin leið frá kúgun og réttindaleysi til frelsis og sjálfstæðis,
frá átökum og úlfúð þjóða í milli til bróðurlegrar vináttu þjóðanna,
frá sulti og fátækt til velmegunar, frá menningarleysi og frum-
stæðri menningu til blóma menningar, vísinda og lista.
Öll söguþróunin staðfestir betur og betur orð foringja flokks
okkar, félaga Stalíns: „Við erum nú að komast á það stig þegar
sósíalisminn getur gerzt (hefur í rauninni þegar gerzt!) frelsun-
arfáni milljónanna, sem byggja hinar víðáttumiklu nýlendur
heims veldisstefnunnar. “
Hugsjónir frelsis og sjálfstæðis þjóðanna, hugsjónir sósíalism-
ans, hafa breiðzt til fjarlægustu afkima undirokuðu landanna.
Þjóðirnar, sem eru að berjast fyrir lausn sinni, vita að með þeim
standa hinar miklu herbúðir friðar og lýðræðis, að Sovétríkin,
kínverska alþýðuríkið, og alþýðuríkin halda uppi málstað friðar,
sjálfstæðis, frelsis og raunverulegs jafnréttis allra kynþátta og
þjóða, og að sjálf tilvera þessara ríkja heldur í hemilinn á myrkra-
öflum afturhaldsins og veitir hinum kúguðu þjóðum lið í baráttu
þeirra.
í vanmætti sínum gagnvart rísandi þjóðfrelsishreyfingu æpa
valdamenn Bandaríkjanna og annarra auðvaldsríkja það út um all-
an heim að baráttan, sem hinar kúguðu þjóðir heyja gegn undir-
okurum sínum sé afsprengi sovétáróðurs í Austurlöndum.
Félagi Stalín svaraði þessum seinheppnu, borgaralegu stjórn-
málamönnum fyrir mörgurri árum. Félagi Stalín sagði:
„Við erum sakaðir um að reka áróður í Austurlöndum............
Við þurfum ekki að reka áróður í Austurlöndum. Sérhver þegn