Réttur


Réttur - 01.08.1952, Page 53

Réttur - 01.08.1952, Page 53
RETTUR 245 þeir framleiddu í Saudi-Arabíu 13 dollara (eða 210 kr.), en það er sjöfaldur framleiðslukostnaður olíunnar. ★ Kjör verkalýðsins, sem skapar allan þennan ódæma arð, fara versnandi. 1950 sýndu hagskýrslur Bandaríkjanna að næstum þrír fjórðu hlutar allra fjölskyldna í Bandaríkjunum höfðu tekjur er voru undir því lágmarki tekna, er þurfti til framfærslu. 3 milj. verkamanna voru atvinnulausir og 10 milj. höfðu litla atvinnu. 1951 hafði ástandið versnað. Jafnvel Tobin, þáv. atvinnumála- ráðherra, varð að viðurkenna að raunveruleg laun 20 miljóna amerískra verkamanna höfðu fallið á því ári. En þó er arðránið sem amerískt auðvald beitir erlendis marg- falt verra en það, sem það þorir að framkvæma heima fyrir. Og amerískt auðvald leitar til þeirra landa þar sem það hefur nógu lág verkalaun, getur arðrænt verkamennina nógu mikið, hindrað samtök þeirra og lækkað laun þeirra. Hér eru nokkrar myndir af arðráni amerískra auðmanna er- lendis, þannig að sýnt er hve lág iaun verkamanna þar eru í sam- anburði við laun amerískra verkamanna: Olíuverkamaður í Arabalöndum hefur ekki einn tíunda hluta oeirra launa, sem amerískur oliuverkamaður hefur, en framleiðir þó meira magn. Innfæddur verkamaður í Puerto Rico hefur aðeins þriðjung til íjórðung þeirra launa, sem samsvarandi amerískur verkamaður hefur, en afköst eru svipuð. Launin, sem greidd eru í koparnámunum, sem ameríski kopar- hringurinn á í Chile, eru aðeins einn fimmti þeirra launa, sem greidd eru í koparnámum Ameríku. í koparnámum Suðvestur-Afríku, sem Newmont Mining-félagið undir yfirráðum Morganhringsins, nú hefur eignazt, eru daglaun negraverkamanns minni en tímalaun verkamanns í Bandaríkj- unum. Á íslandi hafði hafnarverkamaður 1947 sama tímakaup og hafn- arverkamaður í New York. Nú hefur hann eftir gengislækkun- ina, sem amerískt auðvald knúði fram, 42% þess kaups, sem am- eriskur hafnarverkamaður hefur og hefði enn lægra, ef ekki hefði verið háð hörð barátta til að hækka það. ★ Finnst nú nokkrum undarlegt þó verkamenn og nýlenduþjóðir alls heims rísi upp gegn auðvaldi Bandarikjanna, heimti sinn fuila skerf af auð og tekjum mannkynsins og berjist unz hann fæst?

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.