Réttur


Réttur - 01.08.1952, Side 56

Réttur - 01.08.1952, Side 56
248 RÉTTUR vík með árstekjum samkvæmt Dagsbrúnarkaupi hækkað um 74,8% og tekjuskattur um 163,7%. Mun ekki ofmælt að kaupmáttur launanna hafi lækkað um nálega þriðjung. Þetta er árangurinn af stjórnarstefnu Sjálfstæðisflokks- ins, Framsóknarflokksins og Alþýðuflokksins frá 1947 til þessa dags og varð nú ekki lengur við unað. Dagsbrún og önnur forustufélög í Reykjavík gengust fyrir almennum samtökum verkalýðsfélaganna til þess að segja upp samn- ingum og hefja verkfall fyrir bættum kjörum frá 1. des- ember, ef ekki yrði gengið að lágmarkskröfum verkamanna. Varð þetta mesta samfylking, sem um getur í kjarabaráttu íslenzkra verkalýðssamtaka. Samningurinn, sem félögin gerðu með sér var sniðinn eftir samningi þeim, sem gerð- ur var vorið 1951 og leiddi til sigurs. Engu félagi var heim- ilt að gera samninga án samþykkis allra hinna. Kröfurnar voru í aðalatriðum í samræmi við tillögur þær, sem Eðvarð Sigurðsson ritari Dagsbrúnar lagði fram á ráðstefnu verka- lýðsfélaganna í apríl á síðastliðnu vori og sagt er frá í síðustu Víðsjá. Jafnframt því sem þetta varð stærsta verkfall á íslandi varð það einnig hið pólitískasta. Atvinnurekendur neituðu að ræða um nokkra kauphækkun og kjarabætur af sinni hálfu og vísuðu öllu til ríkisstjórnarinnar. Raunar var for- usta atvinnurekenda með Kjartan Thors í fararbroddi og ríkisstjórnin eitt og hið sama meðan á verkfallinu stóð. Það var ekki fyrr en 16. desember, að ríkisstjórnin lagði fram fyrsta tilboð sitt. Var það á þá leið að vísitalan skyldi greidd niður um 5 stig, án þess að kaup lækkaði af þeim sökum. Þetta tilboð var kolfellt á fundum stærstu verka- lýðsfélaganna í Reykjavík og einnig af samninganefndinni allri. Mikil samheldni var meðal verkamanna allt verkfall- ið. Á útifundi, sem haldinn var 6. des. var álíka mikið fjölmenni og venja er til á 1. maí samkomum. 20. des tókust samningar. Aðalatriði þeirra voru þetta: Ríkisstjórnin skuldbatt sig til að lækka verð á nokkrum

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.