Réttur - 01.05.1964, Page 3
R E T T U R
67
þega með þjófalykli verðbólgunnar, en hún hefur aldrei
aftur lagt í að framkvæma þær hálffasistísku aðgerðir, sem
hún reyndi fyrr á tímum. Vonandi ber hún gæfu til þess,
þióðarinnar vegna, að reyna það ekki framar, svo þjóð
vorri verði hlíft við þeim geigvænlegu afleiðingum, sem af
því hlytust eins og þjóðskipulag vort er nú orðið.
Það lilýtur því að vera fyrsta verkefni allrar samstill-
ingar þeirra krafta, sem verklýðs- og launþegastéttin býr
yfir, að hindra hvers konar hálffasistiskar kúgunaraðgerðir
auðmannastéttarinnar: vernda það lýðræði og þau lýðrétt-
indi, sem íslenzk alþýða hefur knúð fram í 70 ára stétta-
stríði sínu fyrir jöfnuði, frelsi og lífshamingju.
Og jafnhliða því verður annað höfuðverkefnið að knýja
fram verulegar launahækkanir, sem eigi verði velt yfir í
\ erðlagið, samfara verðtryggingu og raunverulegri styttingu
vinnudagsins með óskertu heildarkaupi. Og eðlileg afleiðing
af slíku er öll sú breyting á efnahagspólitík, sem stöðvun
óðaverðbólgu hlýtur alltaf að hafa í för með sér.
Pólitíska forsendan fyrir framkvæmd þessara verkefna
er sameiginlegt átak alls verkalýðs og allra launþega og
frumskilyrði slíkrar víðtækrar samvinnu er að samstarf ná-
ist milli þess verkalýðs, er fylgt hefur Sósíalistaflokknum
og Alþýðuflokknum. Það var sá verklýður, sem stóð saman
í liarða vetrarverkfallinu 1952 og sigraði afturhaldið í sex
vikna verkfallinu 1955. Það var sá verkalýður, sem Alþýðu-
samband Islands reyndi að sameina á stjórnmálasviðinu
með tillögu um alþýðu-bandalag 1956, þegar Framsókn
tókst í staðinn að koma hræðslubandalaginu á. Það var sá
verkalýður, sem tók höndum saman á Alþýðusambands-
þingi 1958, og þá sleit Framsókn í ofboði vinstri stjórnar-
samvinnunni og leitaði til íhaldsins um kaupkúgunarsam-
vinnu. Og það var sá verkalýður, sem stóð saman í vörn og
sókn í hinum sögulegu átökum í nóv.-des, 1963 og sigraði.
L