Réttur


Réttur - 01.05.1964, Blaðsíða 13

Réttur - 01.05.1964, Blaðsíða 13
R É T T U R 77 arabiska stafrófið og gátum við, jafnvel á þessum ömurlega stað, brosað að „kænsku“ Gestapó). Meðan einn þeirra skoðaði útvarpið og sneri baki að mér, gelti hann: „Hvar er maðurinn yðar?“ Það gladdi mig ósegjanlega að þeir skyldu ekki hafa fundið Júlek, og það hvarflaði ekki að mér að þeir væru þegar búnir að pynda hann í marga klukkutíma. „Eg veit það ekki, ég hef ekki lengi séð hann,“ endurtók ég enrj „Klæðið yður, þér komið með okkur.“ Ur fatahrúgunni tók ég blátt fellingapils sem Júlek hafði gefið mér, bláa ullarpeysu og kápu með hlýju fóðri. Er einn Gestapó- maðurinn sá í hvað ég ætlaði, öskraði hann: „Til hvers, þér komið strax aftur.“ („Strax“ — eftir þrjú ár!) Ég fór inn í baðherbergið og ætlaði að loka að mér á meðan ég ldæddi mig, en tveir fasistanna eltu mig, annar inn í herbergið en hinn stillti sér við dyrastafinn. Ég sneri við þeim baki og klæddi mig. Báðir gláptu þeir ruddalega á mig. „Þér vitið sem sagt ekki hvar maðurinn yðar er?“ „Ég veit það ekki, ég hef ekki lengi séð hann.“ — Hvað skyldi Júlek vera að gera? Líklega sefur hann. Klukkan ir yfir tvö að nóttu. Ef hann aðeins vissi að þeir væru komnir hér aftur ... Þeir fóru með mig út. Sjálfir slökktu þeir ljósið í herberginu, á baðinu og í anddyrinu. Ég aflæsti íbúðinni og stakk lyklinum í handtöskuna. Þeir Iímdu miða á hurðina, ég laut fram og ætlaði að lesa á hann, en þeir hrintu mér burt og skipuðu: „Áfram!“ Við gengum niður stigann. Húsið var í fasta svefni. Bifreið stóð á mannlausri götunni. Útlínur húsanna bar við sjóndeildarhring- inn. Ekkert skóhljóð, steinhljóð. Allt var sem í álögum. Einn þeirra ýtti mér þegjandi inn í bifreiðina. Tveir þeirra settust fram í, annar þeirra undir stýri, sá þriðji við hliðina á mér. Vélin fór í gang og við af stað. Ég veitti öllu athygli með rósemi eins og þetta væri mér óviðkomandi. Mér fannst við aka óralengi, ábyggilega í gegn- um Prag og lengra. Allan tímann spurðu þeir aftur og aftur: „Hvar er maðurinn yðar?“ . . . „Ég veit það ekki, ég hef ekki lengi séð hann.“ — Hvar skyldi Júlek vera? Bjá Rybarov, hjá Klinkov, eða Baksov? Bara að ekkert komi fyrir hann!“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.