Réttur - 01.05.1964, Blaðsíða 62
126
R É T T U R
Svíþjóð 176 millj. doll., Danmörku 115 millj. doll., Noregi 107
millj. doll. og Spáni 85 millj. doll. — 1 Sviss er fjáríestingin 555
miljónir dollara.
í Afríku og nálægari Austurlöndum 2452 milljónir dollara, þar af
í nálægari Austurlöndum 1206 millj. doll. og í Suður-Afríku 353
inillj. doll.
í fjarlægari Austurlöndum og Astralíu 2550 millj. dollara, þar af
í Ástralíu 1091 millj. doll., Japan 369 millj. doll. og Filippseyjum
374 millj. dollara.
*
Það er svo sem skiljanlegt að auðvald Bandaríkjanna þurfi að
hafa her sinn víða um heim, til þess að tryggja gróðann af auð-
magni sínu! „Voldugir húsbændur, hundar á vörð og hópur af
mörkuðum þrælum,“ kvað Þorsteinn Erlingsson í „Við fossinn.“
En það brakar í hlekkjunum um víða veröld. Þjóðir Afríku, Asíu
og Ameríku eru farnar að slíta fjötrana. En amerískir auðhringar
halda auðsjáanlega að Islendingar séu þægir.
Arðránið í gullnámum Suður-Afríku.
Námur Suður-Afríku eru auðugustu námur heims að gulli. Þar
vinna 420.000 afrískir verkamenn 6000 fet niðri í jörðinni.
Vinnulaunin eru 3 shillingar á vakt eða 18 kr. á dag. Eftirvinna
ckki borguð. Engin sjúkrahjálp. Ferðakostnað verða þeir sjálfir að
borga og þessir verkamenn koma víða að. Aðeins tæpur helmingur
er úr Suður-Afríku. Það nálgast að vera beint þrælahald á ýmsum
þeirra. Frá Mosambique, nýlendu Portúgala, koma 10.000 verka-
menn á ári. Yfirvöldin í Mosambique fá 44 shillinga (264 kr.)
fyrir hvern verkamann og binda þá með samningum til langs tíma.
Strjúki þeir fyrir þann tíma, er farið með þá sem liðhlaupa. —
Verkamenn úr Njassalandi geta með margra ára vinnu komizt upp
í 46 sterlingspunda árslaun (5520 kr.), en þegar búið er að draga
frá álögurnar, verða aðeins 39% pund eftir.
En gróði auðfélaganna, sem námurnar eiga, var 1959 11 milljónir
sterlingspunda (13680 milljónir ísl. kr.).
Verklýðsfélög og verkföll eru bönnuð, en verkamenn vinna stöð-
ugt að því að skapa samtök, halda fundi, þrátt fyrir alla ógnar-
stjórn.