Réttur


Réttur - 01.05.1964, Blaðsíða 25

Réttur - 01.05.1964, Blaðsíða 25
R É T T U R 89 lýðsins. Satt er það, að hugmyndakerfi yfirstéttarinnar er ailsráð- andi hjá meginþorra miðlungs rithöfunda og listamanna, en að- eins að litlu leyti hjá hinum stóru og frumlegu. Þeir blanda ekki geði við valdhafana, gagnrýna auðvaldsheiminn og fást ekki til að lofsyngja ríkjandi ástand. A dögum lénsaðals og renisansa var algengt að hylla lávarða í söngvum. Á auðvaldstímum er lilið á slíkt sem fráleitt og ósamboðið sérhverjum listamanni með snefil af sjálfsvirðingu. Með lénsherrunum hvarf úr sögunni hið aumlega máltæki: „Eg lcfsyng þann, sem gefur mér brauðið.“ Rithöfundar auðvaldsheims- ins, allt frá Rousseau til Tolstoj og Blake til Kafka, tóku upp frá- liverfa stefnu. Þótt ekki væru þeir með öilu óháðir ríkjandi hug- n.yndakerfi, þá settu þeir oft fram skoðanir, sem brutu í bág við það, og auðkýfingar og forsætisráðherrar áttu ekki samúð þeirra. Oftast áttu þeir samstöðu með lítilmagnanum og hinum smáða, ekki valdamönnum og titlalýð. Ur smáborgarastétt voru þeir k.omnir, höfðu fágað og dýpkað innri mótsetningar hennar og voru trúir þessari arfleifð í hlutfalli við andlega stærð sína, en vaxnir upp yfir stéttir og samfélagshópa. Vér getum tekið sem dæmi Flaubert, Rimbaud, Kafka og Picasso og rannsakað það vegarnesti, sem smáborgarauppruni þeirra lét þeim í té, og vér munum finna margt fróðlegt. Engu að síður er það stærð listamannsins sem mestu máli skiptir og hið sérstaka í list hans og séreiginlega. Það brýtur nefnilega í bág við hina félags- legu skilgreiningu. Til hvaða hugmyndafræðilegrar yfirbyggingar heyra mótsagnakennd listaverk Picasso? „Hnignandi“ borgara- stéttar? Eða reikullar smáborgarastéttar? Eða verkalýðsstéttar nú- tímans? Allar slíkar ályktanir væru ósannar. Picasso túlkar í verk- um sínum mótsagnir samtímans, í ákveðnum tilvikum vilhalt, hann er t. d. gegn afturhaldi, kúgun og grimmd; en oft blátt áfram hlutlaust og bregður á listrænan leik — því listamaðurinn verður að hafa rétt til að leika sér án þess að standa reikningsskil æðri yfir- völdum. Og leikurinn með form, liti, skáldlegar myndir og tónstef eru honum nauðsyn. Væri honum meinað þetta, yrði hann einskis uýtur listamaður og betur settur á skrifstofu með ákveðinn vinnu- stundafjölda á dag. Af þessum ástæðum er Picasso fulltrúi listar sem er hátt hafin yfir miðlungsmennsku hins broddborgaralega heims, list hans túlkar alls ekki sjónarmið yfirstéttar, þvert á móti cr hún tjáning á þjóðfélagsandstœðum yfir höfuð, og ráðandi sjón-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.