Réttur - 01.05.1964, Blaðsíða 40
104
K E T T U R
/I'
an ágóða 1962. Brezk-hollenzkt ammóníakíélag hefur starfað á
Kýpur áratugum saman.
Auk þess sem brezkir heimsvaldasinnar hafa herstöðvar á Kýpur
eru bandarískir og vestur-þýzkir heimsvaldasinnar einnig athafna-
samir. Bandaríkjamenn hafa þrjár sendistöðvar á eynni, og eru
þær einkanlega notaðar til njósna.
Á Kýpur eru meira en 1000 einkabifreiðir, sem bera stafina ATL,
en það merkir „American Temporary Licence“ (tímabundin banda-
rísk réttindi). Þessi „réttindi“ voru ekki látin í té af yfirvöldunum
á Kýpur, heldur tóku Bandaríkj amenn sér þau í trássi við lög; þeir
greiða ekki eyri í skatt til stjórnarvaldanna á Kýpur.
Sjötti floti Bandaríkjanna er tíður „gestur“ í höfnum okkar, og
„friðarsveitir Bandaríkjanna“ hafa verið athafnasamar á Kýpur
mánuðum saman.
Efnahagslcg vandamól.
Eftir að lýst var yfir lýðveldi hefur verið komið upp mörgum
áveitukerfum, sinnt hefur verið mörgum mikilvægum verkefnum
og dregið hefur úr atvinnuleysi — og að því hefur alþýða manna
beitt áhuga sínum og atorku.
En margt er enn ógert til þess að vinna bug á frumstæðu atvinnu-
ástandi. Kýpur skortir vatn til þess að gera landbúnaðinn arðbær-
ari. Áveitukerfi þau, sem upp hefur verið komið, eru enn ófull-
nægjandi. Nauðsynlegt er að gera fyrirhleðslur lil þess að safna
birgðum af rigningarvatni og jarðvatni, auk þess þarf nýja laga-
setningu um skynsamlega skiptingu á vatni.
Land gósseigenda þarf að gera upptækt og skipta því milli jarð-
næðislausra bænda og leiguliða. Leysa verður vandamálin, sem
tengd eru skuldum bænda og tryggja þeim nauðsynlegl lánsfé og
koma á hagkvæmu afurðasölukerfi.
Kýpur verður að koma sér upp iðnaði, sem njóli verndar gegn
erlendum einokunarhringum. Á þjóðlegum iðnaði og iðnaði sem
er í eigu erlendra einokunarhringa er reginmunur. Með því að þróa
þjóðlegan iðnað helzt arðurinn í landinu, en þegar iðnaðurinn er í
erlendum höndum er gróðinn fluttur úr landi og erlent fjármagn
drottnar yfir efnahagskerfinu og hefur þannig mikil stjórnmála-
áhrif. Erlendu einokunarhringarnir, sem ekki vilja glata forrétt-
indum sínum á Kýpur, beila sér gegn baráttu almennings fyrir fullu
þjóðlegu sjálfstæði.