Réttur - 01.05.1964, Page 10
GÚSTA FÚTSJÍKOVA :
HANDTAKAN
IJúlíus Fútsjík var fæddur í Prag 23. febrúar 1903. Karel faðir hans var
verkamaður í hinum stóru Ringhoff málmiðnaðarverksmiðjum þar í borg.
Sirax á unga aldri kom í ljós áhugi hans á bókmenntum og tónlist, og þegar
hann var 15 ára birtist eftir hann smásaga í tímaritinu „Nebojsa", sem Karel
Tsjapek gaf út. Arið 1921 hóf hann nám við Iláskólann í Prag í heimspeki
og bókmenntum og sama ár gekk hann í Kommúnistaflokk Tékkóslóvakíu.
Á stúdentsárunum var hann einn af forustumönnum kommúnista í hópi stúd-
enta. Hann hafði frá upphafi náin kynni af baráttu og samtökum verkamanna
og vann fyrir sér um skeið sem verksmiðjuverkainaðui. Ilann fór um tvítugt
að fást við blaðamennsku og skrifaði greinar í „Rude pravo“. Að námi loknu
gerðist hann starfsmaður hjá „Tvorba", róttæku tímariti um bókmenntir og
þjóðfélagsmál undir ritstjórn Sjalda, prófessors í Evrópubókmenntum og
áhrifamanns í menningarmálum Tékkóslóvakíu á millistríðsárunum. 1928
varð Fútsjík ritstjóri tímaritsins og undir ritstjórn hans tók það forustuna í
liinni róttæku menningarbaráttu og baráttunni gegn fasismanum. Það ávann
sér viðurkenningar og vinsælda langt út fyrir raðir verkalýðshreyfingarinnar
og flokksins. Júlíus Fútsjík gerðist einn helzti marxíski bókmenntafræðingur
Tékkóslóvakíu.
Júlíus Fútsjík var í örum vexti sem menningarfrömuður og leiðtogi í þjóð-
félagsbaráttunni, er Miinchensáttmálinn og innrás Þjóðverja í Tékkóslóvakíu
15. marz 1939 knúðu liann til neðanjarðarstarfsemi, ásamt öðrum leiðtogum
kommúnista. 1941 var liann kjörinn í miðstjórn hins bannaða kommúnista-
flokks í landinu.
24. apríl 1942 náðu fasistar honum og hnepptu hann í fangelsi. 25. ágúst
1943 var hann dæmdur til dauða af dómstóli nazista í Berlín og tekinn þar
af lífi 8. september sama ár.
I fangelsinu tókst Fútsjík að skrifa bókina: „Með hengingarólina um háls-
inn“, sem hefur verið þýdd á meir en 80 tungur og gefin út í yfir tvö hundruð
útgáfum.
f Tékkóslóvakíu er Júlíus Fútsjík þjóðhetja. llann barðist einbeittur og
ótrauður fyrir hugsjón sósíalismans, livað sem á dundi. Sjálfur var hann
lagður að velli í þeirri baráttu, en sannfæring hans um lokasigur sósfalismans
bilaði aldrei.
Eiginkona hans, Gústa Fútsjíkova, liefur skrifað: „Endurminningar um
Júlíus Fútsjík", og birtist hér hluti úr kaflanum „Handtakan“. — Þýð.J