Réttur


Réttur - 01.05.1964, Side 20

Réttur - 01.05.1964, Side 20
84 R É T T U R 1963 kom út ein af ágætustu bókum hans: „Probleme der jungen Generation" („Vandamál ungu kynslóðarinnar"), ein hin bezta bók, sem rituð hefur veriS um þau miklu mál. — Frá 1959 hafa þungbær veikindi hindrað hann í daglegri ttjórnmálabaráttu, en hann vinnur allt hvað heilsa hans leyfir sem rithöfundur —og snilld hans hefur sjaldan verið meiri en í þessum síðustu bókum hans. Grein sú, sem hér birtist, er úr bók, sem hann nú er að skrifa um „List og sambúð“ og birtist með leyfi höfundar. — E. 0.] Vélræn efnishyggja fyrri tíma leit á hugsunina sem einhvers konar heilastrit og hugsanir svita vitsmunalífsins. A vorum dögum vitum vér hversu hugsanalífið er margslungið fyrirbrigði og mót- sagnakennt, þ. e. a. s. vér vitum það satt að segja ekki ennþá, vér erum í þann veginn að kynnast því. Því miður hafa margir kreddubundnir marxistar samskonar fábrotinn skilning á mannlegum hugmyndum, hugsanaferli, tilfinn- ingum, draumum, siðgæði og viðhorfi í listum — telja þetta svita efnalífs og samfélagsafstæðna, álíta bókmenntir og listir eins konar snigilhús; sérhver þj óðfélagsstétt og kerfi beri sitt eigið snigilhús á bakinu, sitt einkasmíð og einskis annars. í formálanum að „Zur Kritik der politischen. Ökonomie“ talar Karl Marx um framleiðsluafstæður er svari til ákveðins þróunar- stigs framleiðsluaflanna: „í heild mynda þessar framleiðsluafstæður efnahagsbyggingu þjóðfélagsins, þá raunverulegu undirstöðu sem yfirbygging laga og stjórnmála hvílir á og á sér samsvörun í ákveðnum tilbrigðum samfélagsvitundar. Framleiðsluhættir efnahagslífsins móta almenn einkenni hins samfélagslega, pólitíska og andlega lífs. . . . Þegar efnahagsgrundvöllurinn breytist, veltist öll hin geysilega yfirbygg- ing um, ýmist hratt eða hægt. Við rannsókn á slíkum umbreyting- um verður alltaf að gera greinarmun á efnalegum umbreytingum á framleiðsluafstæðum efnahagslífsins, sem greina má með náttúru- vísindalegri nákvæmni — og hins vegar lagalogum, pólitískum, trúarlegum, estetískum og heimspekilegum, í stuttu máli: hug- rnyndafræðilegum tilbrigðum, eins og menn skynja þessar mótsetn- ingar og snúast gegn þeim.“ Gegn öfgaeinföldun.*) Ég birti þessi ummæli hér, þótt ótal sinnum hafi verið vitnað til þeirra áður, sem stórmerka uppgötvun og til að vekja athygli á þeirri *) Kaflafyrirsagnir eru frá tímaritinu sem þýtt er úr, en ekki höfundi. Þýð, l

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.