Réttur - 01.05.1964, Page 31
R É T T U R
95
Ábyrgð listamannsins í þjóðfclagi sósíalismans.
Form eða lján ingartilbrigði í listum eða bókmenntum verða ekki
jtokkuð í borgaraleg eða próletarísk. En það er til sósíalísk sann-
jœring sem bæði þráir og er ákveðin í að gera heim sósíalismans að
samfélagi er bægir ekki framar manninum frá sér, skapa þjóðfélag
allsnægta og skynsemi, frelsis og mannúðar. Og það er ekki hægt að
h'ta á það bezta í listum og bókmenntum vorra tíma — í auðvalds-
þjóðfélagi eða sósíalísku — sem einbera iiugmyndafræðilega yfir-
byggingu framleiðsluafstæðnanna. A margan og ólíkan hátt eru það
lilraunir til að láta í Ijós síbreytilegan veruleika með öllum tiltækum
ráðum; ef ekki til að greiða í sundur hina miklu flækju, þá til að
sjá fyrir bæði umturnanir vorra tíma og stórfengleg tækifæri. Að
þessu Ieyti hvílir feikileg ábyrgð á sósíalískum lithöfundum og lista-
mönnum, og þeir geta því aðeins staðið undir henni að flokkurinn
viðurkenni þá sem fullþroska og sjálfstæða hugsuði, sem menn er
taki köllun sína alvarlega. Hér hvílir það meginverkefni á flokknum
að veita listunum allan hugsanlegan stuðning og sem mest athafna-
frelsi; næra og dýpka sósíalíska sannfæringu listamannsins eftir
beztu getu, með fordæmum, umræðum og andlegri örvun. Það er
áríðandi að víkka til hins ítrasta sjóndeildarhring, bæði þeirra sem
njóta menningarinnar og hinna sem skapa hana, á almennu félags-
sviði, og andlegu og siðfræðilegu. Það á ekki aðeins að leyfa sam-
keppni hjá ólíkum listastefnum og stílum, það á beinlínis að hvetja
til hennar. Listir og bókmenntir sósíalismans munu aðeins blómgast
sem árangur af slíkri samkeppni, margbreytilegu frumkvæði og
marghliða uppgötvunum á nýjum veruleika.
Samfara slíkri blómgun munu listir og bókmenntir sósíalismans
ná út fyrir takmörk þess heims sem ól þær. Þær munu ekki aðeins
tala til sósíalista; boðskajrur þeirra mun ná til allra er þrá veröld
sem hæfir mannlegu lífi. Þær munu tala til mannkyns sem er í upp-
reist. Þess vegna er ábyrgð þeirra feikileg, leit að nýjungum höfuð-
nauðsyn og möguleikar þeirra óþrjótandi.
(ERA þýddi úr „Marxism Today“).