Réttur - 01.05.1964, Blaðsíða 38
102
R E T T U R
Þessar tillögur sem eru skynsamlegar og réttlátar njóta stuðnings
Framfaraflokks alþýðu á Kýpur (AKEL) og allra Grikkja í land-
inu.
En í stað þess að fallast á samningaviðræður hótuðu þjóð-
rembingsmenn þeir sem hafa forustu fyrir Tyrkjum að brjóta
gríska Kýpurbúa á bak aftur, ef nokkur tilraun yrði gerð til að
endurskoða stjórnarskrána og sáttmálana frá Ziirich og Lundúnum.
Sumir fulltrúar tyrknesku ríkisstjórnarinnar gengu meira að segja
svo langt að hóta innrás. Hvorki stjórnarskráin, öryggissáttmálinn
né Ziirich-samkomuiagið hafa nokkru sinni hlotið samþykki Kýpur-
búa í þjóðaratkvæðagreiðslu, né heldur af fulltrúasamkomu eða á
jsingi. A því er enginn vafi að hefði samkomulag þetta verið borið
undir almenning hefði því verið hafnað. Sama er um stjórnarskrána
að segja. En stjórnarskrá hvers lands á að vera sérmál íbúanna
einna og engra annarra. Og stjórnarskrá verða íbúarnir annað
hvort að lokum að samþykkja í þjóðaratkvæðagreiðslu eða láta
einhverja þar til hæra fulltrúastofnun fjalla um hana. En þannig er
stjórnarskrá lýðveldisins Kýpur ekki til komin, henni var komið á
með brögðum.
I öllum stjórnarskrám er gert ráð fyrir breytingum. I stjórnar-
skrá Kýpurs eru að sjálfsögðu ýms ákvæði sem eru undirstöðuatriði
og mega ekki haggast. En við búum nú við það ótrúlega ástand,
að íbúunum er ekki talið heimilt að breyta sinni eigin stjórnarskrá!
Engin stjórnarskrá í heimi getur staðizt óbreytt að eilífu, allra sízl
hafi stjórnarskráin hvorki verið rædd né samþykkt af landsmönn-
um sjálfum.
Sú spurning hlýtur að vakna hverjir hagnist á hinni óbilgjörnu
afstöðu tyrknesku leiðtoganna? Svarið er aðeins eitt — heimsvalda-
sinnar. Blöðin hafa birt frásagnir þess efnis að stjórn Bandaríkj-
anna sé ekki sammála yfirlýsingu forseta Kýpurs um endurskoðun
stjórnarskrárinnar og samninganna. Hið sama sagði brezka útvarp-
ið um afstöðu brezku stjórnarinnar. A bak við tyrknesku leiðtog-
ana standa heimsvaldasinnar, styðja hina óbilgjörnu afstöðu þeirra
og áform þeirra um erlend afskipti af málefnum Kýpurbúa.
Heimsvaldasinnum féll ekki við yfirlýsingu Makariosar um end-
urskoðun á stjórnarskrá og samningum, og þess vegna er lagt fast
að þjóð okkar og tekin upp undirróðursstarfsemi. Heimsvalda-
sinnar vilja að Kýpur gangi í Atlanzhafsbandalagið og segja að þa
rnuni vandamál Kýpurs leysast af sjálfu sér. Sömu öflin, sem and-