Réttur - 01.05.1964, Síða 43
R É T T U R
107
þýðu inanna, villa um fyrir fólki og gera þaS fráhverft meginverk-
efninu — að vinna bug á heimsvaldastefnunni og fullkomna sjálf-
stæði Kýpurs.
Við Kýpurbúum blasir nú þróun sem getur ráðið úrslitum um
framtíð þeirra. Tillögur Makariosar um að endurskoða stjórnar-
skrána í því skyni að styrkja fullveldi og sjálfstæði landsins voru
notaðar sem átylla til vopnaviðskipta sem tyrkneskir öfgamenn áttu
upptökin að. A bak við þá standa heimsvaldasinnar sem hagnýttu
sér álökin til afskipta af innanlandsmálum lýðveldisins.
1 einróma ályktun miðstjórnar AKEL var á það bent að átökin
í Nikosíu og öðrum borgum og þorpum, þar sem margir féllu og
særðust, stöfuðu af því að vandamál Kýpurs hefðu ekki verið leyst
í samræmi við sjálfsákvörðunarrétt íbúanna. Heimsvaldasinnar hafa
svipt Kýpurbúa þessum rétti, en í staðinn er þeim gert að lúta samn-
ingunum frá Ziirich og Lundúnum þótt af þeim spretti sífelld átök
Grikkja og Tyrkja.
I ályktunininni segir að stjórn Tyrklands beri meginábyrgð á
hinu óeðlilega ástandi um þessar mundir með endurteknum hótun-
um sínum um vopnaða innrás. „Oryggissáttmálinn“, sem var hluti
af samkomulaginu frá Zurich og Lundúnum, var notaður af tyrk-
nesku stjórninni til að réttlæta ögranir í samskiptum við Kýpur
og „rétt“ Tyrkja til afskipta af innanlandsmálum lýðveldisins.
Þriggja ára saga lýðveldisins Kýpurs hefur sannað það ótvírætt
að eigi ríkið að starfa á eðlilegan hátt og framfarir að nást á sviði
stjórnmála og efnahagsmála er óhj ákvæmilegt að losa Kýpur við
samningana frá Zúrich og Lundúnum og endurskoða ólýðræðislegar
greinar stjórnarskrárinnar.
Tilraunir þær sem Makarios erkibiskup hefur gert til þess að
endurskoða stjórnarskrána hefðu átt að leiða til samningaviðræðna
grískra og tyrkneskra Kýpurbúa, en stjórnin í Ankara reis öndverð
gegn þeim. Sú afstaða leiddi til þess að forustumenn Tyrkja á Kýpur
neituðu að ræða tillögur forsetans. Tyrkland svaraði síðan með
hótunum um innrás.
Þegar svo var komið nægði einn árekstur milli tyrkneskra öfga-
manna, sem voru vopnaðir í trássi við lög, og lögreglusveitar til
þess að vopnaðar tyrkneskar liðsveitir snerust gegn lögum og
reglu, og afleiðingin varð blóðsúthellingar.
Við þessar alvarlegu aðstæður ítrekaði flokkur okkar þó ákvörð-
un sína að styðja stjórn lýðveldisins í einu og öllu, stuðla að því