Réttur - 01.05.1964, Side 61
R E T T U R
125
tekjurnar eiga þá að hafa meir en fer-faldazt (4.2), iðnaðarfram-
leiðslan á að hafa 5,5-faldazt, landbúnaðarframleiðslan tvöfaldazt
og framleiðni vinnuafls i iðnaðinum 4,4 faldazt.
Pólland er nú eitt af tíu mestu efnaiðnaðarlöndum heims. Efna-
iðnaðarframleiðslan var 1962 18 sinnum meiri en fyrir stríð. En þó
á framleiðslan í efnaiðnaðinum fram til 1980 að vaxa tvöfalt meir
en almennt í iðnaði, — eða 11-faldast. Höfuðundirstaða þess hluta
efnaiðnaðarins, sem vinnur úr olíunni (petrokemi), verður í Plock,
en þangað liggur olíuleiðslan mikla frá Sovétríkjunum.
1957 fundust svo miklar kopar-námur í Póllandi í Lublin-Glogów
héraðinu að Pólland varð eitt kopar-rikasta land heimsins. Um
1970 verður farið að vinna úr þessum námum eins mikið og hægt
er, um 1975 mun Pólland geta hætt að flytja inn kopar og um 1980
mun Pólland framleiða níu sinnum meira en nú — um 200.000
smálestir á ári.
Pólland mun 1965 hafa komið upp aluminiumverksmiðju, er fram-
leiðir 100.000 smálestir af aluminium-málmi á ári.
Pannig mætti lengi telja.
En til þessa alls þarf mikinn fjölda sérfræðinga. Til 1980 munu
tækniskólar Póllands útskrifa 290.000 verkfræðinga. Tala útskrif-
aðra rafmagnsfræðinga mun sex-faldast, efnaiðnaðarfræðinga fimm-
faldast, vélfræðinga fjórfaldast o. s. frv.
Landbúnaðarframleiðslan á að hafa tvöfaldazt 1980, eða aukast
um 3.5% á ári að meðaltali.
Allt þetta á að gera það mögulegt að hafa þrefaldað neyzlu á
hvert mannsbarn árið 1980.
Fjárfesting amcríska auðvaldsins erlendis.
Bandaríska tímaritið Fortune veitir í desemberhefti sínu eftirfar-
andi upplýsingar um fjárfestingu bandariska auðvaldsins erlendis:
Hún óx úr 11800 milljónuin dollara árið 1950 upp í 37000 millj-
ónir 1962. Ef frá er dregin fjárfesting í alþjóðlegum skipafélögum,
sem er 1600 milljónir dollara, þá er bein fjárfesting erlendis 35500
milljónir dollara.
Skiptingin á heimsálfur er sem hér segir:
I Ameríku 21658 milljónir dollara, þar af í Kanada 12131 milljón
dollara og Venezuela 2826 milljónir dollara.
í Evrópu (Vestur-Ev.) 8843 milljónir dollara, þar af í Englandi
3805 m. d., Vestur-þýzkalandi 1472 millj .d., Frakklandi 1006 m. d.,