Réttur - 01.04.1970, Blaðsíða 21
sinni og réttindaleysi í ríkasta landi heims
sem og gegn styrjaldaróhæfunni erlendis.
Drengileg barátta þessara Bandaríkja-
manna mætti vera þjóðunum í skattlöndum
hins ameríska Mammons til fyrirmyndar.
Að lokum tvær samvizkuspurningar til
sósíalistískra stórvelda heims og vor Islend-
inga sjálfra:
Hve lengi ætla tveir stærstu kommúnista-
flokkar heims, sem ráða voldugustu ríkjum
alþýðunnar, Sovétríkjunum og Kína, að
„skemmta skrattanum”, með því að láta
ósætti sitt vera Bandaríkjunum að skálka-
skjóli, því án þess missættis væri Vietnam-
stríðinu löngu lokið?
Hve Iengi ætla Islendingar með arf kúg-
aðrar nýlenduþjóðar í blóðinu, að halda á-
fram, eftir að hafa öðlazt stjórnarfarslegt
sjálfstæði, að vera þessu blóðveldi hendbendi
og herstöð við að brjóta undir auðvald sitt
og hervald þær þjóðir jarðar sem það þorir
að leggja í?
Einar Olgeirsson.
(Fjölmörg rit fjalla um þau efni, sem hér er um rœtt.
Nefna skal þessi:
Gustavus Myers: History of the great American for-
tunes. (Modern Library, New York, 1936. Hin sígilda
bók um auösöfnunina í „Mammonsríki Ameríku**).
Scott Nearinr og Joseph Frecman: Dollar Diplomacy.
(Saga útþenslu amerisku heimsvaldastefnunnar fram
undir 1930).
David Ilorowitz: Bandaríkin og þriðji heimurinn.
^eykjavik, 1969.
J. William Fulbrigrht: The Arrogance of power. (Valda-
hrokinn). New York 1966.
J. J. Arcvalo: Hákarlinn og sardínurnar. Reykjavík
1962.
Fred A. Cooks: The Warfare State. (Hernaðarríkið).
Jonathan Cape. London 1963.
Magnús Kjartansson: Byltingin á Kúbu. Rv. 1962.
Magrnús Kjartansson: Víetnam. Rv. 1968.
Einar Olgeirsson: ísland og Ameríka. í ,,Rétti“ 1947.
1. hefti Réttar 1968 var fyrst og fremst helgað ame-
rísku heimsvaldastefnunni. Eru margar ýtarlegar grein-
ar um þessi mál í því hefti, sem og næstu heftum á
undan og eftlr.
61
L