Réttur - 01.04.1970, Blaðsíða 34
Verður nú rakið í tímaröð það helzta sem
gerðist í framhaldi af töku sendiráðsins í
Stokkhólmi:
21. apríl: Utanríkisráðuneytið birtir nöfn
11 ísl. námsmanna rétt eins og um ótínda
glæpamenn væri að ræða.
22. april: Haldinn blaðamannafundur
stjórnar SINE þar sem kemur m.a. fram að
námsmenn erlendis geta að námi loknu
skuldað allt að 800 þús. kr. A blaðamanna-
fundinum gerði stjórn SINE grein fyrir meg-
inkröfum sínum:
1. Gerð verði áætlun um að námslán nemi
allri umframfjárþörf 1974.
2. Að námsmannameirihluti verði í stjórn
Lánasjóðsins.
3. Að lánsúthlutun fyrir næsta ár fari fram
strax næsta haust.
24- april: Stór hópur æskufólks kemur í
menntamálaráðuneytið og setzt á ganga þar.
Er kastað út með ofbeldi — stórsá á nokkrum
þátttakenda. Þeir drógu rauðan fána að húni
í menntamálaráðuneytinu og lýstu fullum
samhug með barátm verkalýðsstéttarinnar.
25. april: Islenzkir námsmenn á Norður-
löndum efndu til aðgerða fyrir utan sendiráð-
in í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi og Osló.
Islenzkir námsmenn í Kaupmannahöfn sendu
frá sér yfirlýsingu þar sem segir: „Við biðj-
um íslenzk yfirvöld ekki um gjafir, en óskir
okkar eru þær að lánin verði aukin svo
mikið að öllum verði mögulegt að stunda
nám".
26. april: SÍNE og SHÍ efna til fundar í
Norræna húsinu með menntamálaráðherra
þar sem hann er á algeru undanhaldi og er
nú orðið greinilegt að almenningsálitið er
farið að hallast mjög frá sjónarmiðum ríkis-
stjórnarinnar. Hélt Gylfi blaðamannafund til
þess að rétta sig af — en tókst ekki.
28. april: Þennan dag birtir Þjóðviljinn
ályktanir vegna námsmannamálsins frá ýms-
um aðilum: Frá íslenzkum námsmönnum í
Helsinki, Stokkhólmi, en í Stokkhólmssam-
þykktinni er m.a. mótmælt hótunum Jóhanns
Hafsteins um að svipta þá námsmenn sem
stóðu að töku sendiráðsins öllum fjárhagsleg-
um stuðningi. Sama dag birtir Þjóðviljinn
ályktun sem var samþykkt samhljóða á fundi
Verkamannafélagsins Dagsbrúnar. Þar var
lýst yfir stuðningi við kröfur námsmanna.
Með samþykkt Dagsbrúnar markast greinileg
tímamót í baráttu ísl. námsmanna: Hinn sér-
hagsmunalegi rammi námsmannabarátunnar
hefur gjörsamlega verið brotinn og barátta
námsfólks og verkafólks verður samtvinnaðri
í augum almennings en nokkru sinni fyrr.
29. april: Þjóðviljinn birtir greinargerð og
ályktanir frá íslenzku námsfólki í Lundi og
Danmörku með undirskriftum 85 íslenzkra
námsmanna erlendis. — Þessa dagana birtast
fréttir um baráttu íslenzkra námsmanna í er-
lendum blöðum og vöktu greinar „Aften-
posten" og „Dagens Nyheter" um ástandið
hér á Islandi mikla hneykslun Morgunblaðs-
ins og ráðherranna.
NIÐURSTÖÐUR
Tíðindi námsmannabaráttunnar í vor verða
ekki rakin nánar á þessum stað að sinni. Von-
andi gefst tækifæri til þess að fá einhvern
þeirra, sem í' eldlínunni stóðu, til þess að
segja ítarlega frá baráttu íslenzkra náms-
manna hér í Rétti.
Verður látið nægja að benda á nokkrar
aðalniðurstöður:
1. Námsmannabaráttan varð árangursrík að
því leyti að hún vakti athygli allra Islend-
inga og fjölmargra annarra á kjörum ís-
lenzkra námsmanna. Sú harka sem náms-
menn sýndu í vor verður vafalaust til þess
að ráðamenn þora ekki annað en að sýna
74