Réttur - 01.04.1970, Blaðsíða 38
Eftir 10. júní hófust umræður á samninga-
fundum verkalýðsfélaganna um sérkröfur
verkalýðsfélaganna, en þá hafði verið gengið
frá vísitöluákvæðunum sem fólu í sér fullar
verðlagsbæmr á öll laun. Þetta skref samn-
inganna um vísitölubætur var feikistórt og
þýðingarmikið; með því hafði ríkisstjórnin
fallið frá afnámi sambands verðlags og launa
sem hefur orðið henni sífellt tilefni til stríðs-
reksturs gegn launafólki allan valdatíma
hennar. (Sjá meðfylgjandi yfirlit yfir verk-
fallsdaga í valdatíð ríkisstjórnarinnar). Astæð-
an til þess að ríkisstjórnin lét undan í þessu
máli var ekki sízt gífurleg óánægja opin-
berra starfsmanna og annarra launamanna í
millilaunaflokkum. A þjóðhátíðardaginn —
sem eðlilega var með verkfallssvip í Reykja-
vík — var svo loks farið að ræða um aðal-
kröfuna og 19- júní voru samningar undir-
ritaðir. Verða samningar almennu verkalýðs-
félaganna ekki raktir lið fyrir lið hér, en
þessi voru helztu atriði samninganna:
15% kauphækkun.
Verulegar taxtatilfærslur þannig að laun
Dagsbrúnarmanna hækkuðu yfirleitt frá
17% til um 20%.
Full vísitala á öll laun.
Aldurshækkanir og fleiri slik áunnin rétt-
indi færast milli atvinnurekenda innan sömu
starfsgreinar.
Samningurinn gildir til 1. október 1971.
Almennu verkalýðsfélögin héldu flest
fundi 19- júní og voru samningarnir sam-
þykktir í öllum félögunum á óvenjufjölmenn-
um fundum. Um þúsund Dagsbrúnarmenn
sóttu fund Dagsbrúnar í Háskólabíói og voru
samningarnir samþykktir á fundinum með
nærri öllum atkvæðum gegn fjórum. Er ó-
hætt að fullyrða að Dagsbrúnarmenn eru al-
mennt sáttir við samningana og formaður
Dagsbrúnar, Eðvarð Sigurðsson, fékk góðar
undirtektir á fundinum í Háskólabíói —
Verkfallsdagar i valdatið viðreisnar-
stjórnar:
Fjöldi Dagar
vinnu- með vinnu FJöldi stöðvana stöðvun þátttakcnda Samtals verkfallsd.
1960 3 14 125 680
1961 70 214 16357 278437
1962 24 171 3029 99982
1963 66 153 21262 206773
1964 4 32 1207 10441
1965 66 147 15727 84469
1966 23 13 1866 5254
1967 60 87 9371 18171
1968 67 60 20083 221939
1969 131 78 33262 147051
Alls: 1.073.197
1970 (Aætlað) 15000 300.000
sennilega betri en á nokkrum félagsfundi í
Dagsbrún í mörg ár. Eðvarð hafði alla for-
ustu í samningunum fyrir hönd verkalýðs-
félaganna — hann var í þessum samningum
sem oft áður aðalsamningamaður verkalýðs-
félaganna og árangurinn varð betri en oft
áður. „Við höfum hafið sóknina; við verð-
um að halda henni áfram", sagði Eðvarð í
lokaræðu sinni á Dagsbrúnarfundinum.
Þegar þetta er skrifað — þriðjudaginn 30.
júní — eru enn allmörg félög í verkfalli: 12
félög innan Málm- og skipasmiðasambands
Islands eiga í verkfalli ennþá, nokkur félög
byggingamanna og ósamið er við ýmis fleiri
verkalýðsfélög, t. a. m. verkalýðsfélögin í
Vestmannaeyjum. Þar hefur verið yfirvinnu-
bann nokkrar vikur og hafnarbann.
Þá er enn ósamið við loftskeytamenn,
bryta, stýrimenn og vélstjóra á farskipunum.
Hafa margir samningafundir verið haldnir
en lítið miðað í átt til samkomulags, enda
hafa atvinnurekendur ríkisstjórnina með
78