Réttur


Réttur - 01.04.1970, Blaðsíða 40

Réttur - 01.04.1970, Blaðsíða 40
Það verður hins vegar að segjast eins og er að þessi hugur almennings, sem var hlið- hollur verkfallsmönnum fékk ekki að njóta sín sem skyldi. Það var fjarri því að forustu- menn verkalýðsfélaganna nýtm til fulls það afl sem styrkur fjöldans getur verið í verk- fallsbaráttu. Þó voru vinnubrögðin við verk- fallsátökin miklum mun betri og jákvæðari að þessu leyti en síðustu ár. Og af því má einnig ráða að slík vinnubrögð gefa betri ár- angur en áður hefur náðst og það má enn læra að með því að nýta afl fjöldans enn betur mætti ná enn meiri árangri í næstu lotu. Að síðustu skal minnzt á söfnunina fyrir verkfallsmenn en í henni var jákvæður hug- ur almennings ekki nýttur sem skyldi. Hér safnaðist aðeins ein miljón króna — til sam- anburðar skal þess getið að þrjú verkalýðs- félög í Færeyjum sendu hingað hálfa miljón króna! Ef söfnunarátakið hefði verið reist rösklega mátti búast við umtalsverðum ár- angri, ekki bara í því að safna peningum, heldur líka í því að virkja miklu meiri fjölda til þess að leggja verkfallsmönnum lið á bein- an hátt sem er geysiþýðingarmikið. 30. júlí og voru samningarnir samþykktir í félögunum daginn eftir. 1. júlí sömdu Tré- smiðafélag Reykjavíkur og Félag pípulagn- ingamanna framhjá VinnuveitendasambanJ- inu beint við atvinnurekendur. 2. júlí náðust samningar milli samninga- manna rafvirkja og atvinnurekenda, sömu- leiðis tókust sama dag samningar hjá verzl- unarmönnum sem höfðu ekki verið í verk- falli. Samningar rafvirkja voru samþykktir í rafvirkjafélaginu samdægurs og var þar með lokið sex vikna verkföllum sem hófust 27. maí og stóðu til þess er rafvirkjar sömdu síðastir 2. júlí. VIÐBÓT 14. JÚLÍ Nú er Réttur að fara í prentun og því nauðsynlegt að bæta við eftirfarandi atriðum: Ríkisstjórnin setti gerðardómslög á yfir- menn á farskipunum og þvingaði þá þannig á sjóinn 1. júlí sl. Hins vegar hafði meiri- hluti yfirmannanna sagt upp störfum áður en þvingunarlögin voru sett og tekur sú upp- sögn gildi 10. október. Þá munu yfirmenn á farskipunum á nýjan leik taka sín kjaramál til athugunar, en gerðardómurinn á að skila af sér endanlega fyrir ágústlok. (Sjá Þjóðvilj- ann 1. júlí). Samkomulag náðist með fulltrúum málm- og skipasmiða og atvinnurekenda að kvöldi 80

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.