Réttur - 01.04.1970, Blaðsíða 32
Hermenn ur alþýðuhernum sem komist hafa yfir Vislu-á í útborgina Praga.
Kliszko var nokkrum árum síðar settur i fangelsi
ásamt Gomulka, en þeir hafa ætíð verið nánir
samstarfsmenn. Sátu þeir nokkur ár í fangelsi með-
an málaferlaofsóknir áranna 1949—53 gengu yfir
og kalda stríðið var í mestum algleymingi. En frá
1956 hefur Kliszko verið ritari flokksins með al-
þjóðahreyfinguna að sérgrein.
Pólski Verkamannaflokkurinn og þjóðin undir
forystu hans hafa unnið hið ótrúlegasta afrek í að
reisa Pólland úr rústum. Aðeins þeir, sem séð hafa
Varsjárborg í stríðslok, geta gert sér í hugarlund
hvílíkt afrek það var að byggja þá borg á ný. Fyr-
ir áratug kom ég í Zoliborz og gekk um „gömiu
borgina", sem að nokkru var endurreist í fornum
72
stíl — og hver maður sem til þekkir, hlýtur að
fyllast aðdáun á því stórvirki, sem þar var unnið
við uppbygginguna, og þeirri ræktarsemi við þjóð-
arerfð, sem birtist í þvi að reisa margar bygging-
anna eins og þær áður voru, svo dýrt og erfitt
sem það er.
En sú þjóð og sá flokkur, sem gengið hefur í
gegnum hörmungar styrjaldarinnar og lifað sorg-
leiki uppreisnanna, lætur sér ekki allt fyrir brjósti
brenna. Frásögn Kliszko af uppreisninni i Varsjá
1944 varpar skæru Ijósi á hetjulegan sorgleik úr
lífi þessa fólks og flokks, á sögulega atburði, sem
oft hafa verið mistúlkaðir og rangfærðir.
J