Réttur


Réttur - 01.04.1970, Page 39

Réttur - 01.04.1970, Page 39
Eðvarð Sigurðsson bráðabirgðalög upp á vasann ef á þarf að halda. Nú síðast hafa yfirmenn á farskipun- um slegið lagavopnið úr höndum ríkisstjórn- arinnar með því að segja upp störfum á far- skipaflotanum. Það er því ekki séð hverjar lyktir mála verða í verkfalli ofangreindra aðila. Náist ekki samningar um helgina kemur til verk- falls í Straumsvík hjá álverksmiðjunni. Hafa þrjú félög lýst yfir samúðarvinnustöðvun hjá alverksmiðjunni: Félag ísl. rafvirkja, Félag járniðnaðarmanna og Félag bifvélavirkja. Þetta er „samúðarvinnustöðvun" vegna þess að samningar við álverið í Straumsvík renna ekki út fyrr en í haust og „samúðarvinnu- stöðvunin" kemur ekki til framkvæmda fyrr en þetta vegna sérkennilegra ákvæða í Straumsvíkuryfirlýsingunni. Þar er svo kveð- ið á, að ekki megi koma til verkfalls í ál- verksmiðjunni fyrr en verkfall á vinnusvæð- inu hefur staðið í fjórar vikur. Vegna þess að vinnudeilunum er þannig ekki endanlega lokið verður ekki hægt í þessu hefti Réttar að greina frá öllum atrið- um niðurstöðunnar — eins og stendur eru stærstu spurningarnar í sambandi við upp- sagnir yfirmanna á farskipunum og verkfall- ið í Straumsvík. En líklegt má telja að verk- föllin — a. m. k. hjá málmiðnaðarmönnum og skipasmiðum leysist næstu daga. Enginn tími er til þess að gera neina heild- arúttekt á vinnubrögðum í verkfallinu og samningunum. Þó er rétt að vekja hér að lokum athygli á eftirfarandi atriðum: Framkvæmd verkfallsins virðist hafa tek- izt allvel hjá Dagsbrún. Hins vegar virðist nauðsynlegt að draga þann lærdóm af reynslu þessa verkfalls að Verkamannasamband Is- lands verður að skipuleggja betur fyrir verk- fall, verkfallsaðgerðir og þá þætti fram- kvæmdanna sem sameiginlegir eru. Það var þýðingarmikið og rétt að hafa samninga- nefndir fjölmennar og hyllast til þess að sem flest félög hefðu beina aðild að samninga- viðræðunum. Hugur almennings í þessum verkfallsátök- um hefur verið verkfallsmönnum hliðhollur. Það sést á því að tiltölulega lítið hefur verið um verkfallsbrot. I því sambandi er helzt að nefna verkfallsbrot hjá Reykjavíkurborg í áhaldahúsinu, tilraunir til verkfallsbrota við benzínflutninga, jafnvel hjá Sambandinu. En að öðru leyti var ekkert um stórfelldar til- raunir til verkfallsbrota. Aðalþrýstingurinn hvíldi eins og venjulega á höfnunum og fisk- iðnaðinum. 79

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.