Réttur - 01.01.1972, Side 8
þau og vör við lyktina af þeim svita, er frá
manneskjunni kemur. Það er hið „elektron-
iska" stríð, sem hér er skipulagt: Hreyfing
fótanna gefur aðstöðu til að skjóta á þá, —
tal tungunnar lokkar napalmsprengjubrotin
í þann, sem mælir, — sviti burðarmannsins
kallar á helsprengjurnar. Það er sama hvort
barn treður stíginn eða stúlka tínir ávexti,
—allsstaðar vofir morðvopnið yfir.
Aðferðir Bandaríkjanna eru að myrða allt
lifandi á þeim svæðum, sem þeir ekki drottna
yfir.
Líf þjóðarinnar skal afmáð, — ef hún
sættir sig ekki við að vera keyrð í fjötra
— fyrir olíukóngana. En það verður að ger-
ast ódýrt, — hvað bandarískt blóð snertir,
— annars gæti Nixon tapað í kosningum.
Kjörorðið er raunverulega orðið: Allt —
lygar, pyntingar, eitrun, múgmorð, þjóðar-
morð, — allt fyrir auðhringana.
En hver eru svo viðbrögð þeirra manna
hér heima, sem dýrka þetta ægilega auð-
vald Bandaríkjanna, reyna að telja þjóðinni
trú um að það sé brjóstvörn frelsis í heim-
inum og hafa allt fram að birtingu Pentagon-
skýrslanna reynt að berja það inn í höfuð
Islendinga að Víetnam eigi upptökin að
styrjöldinni — hver eru viðbrögð Morgun-
blaðsins, þegar það neyðist til að játa stað-
reyndir eins og morðin í My Lay? Morgun-
blaðið sagði í leiðara sínum 27. nóv. 1969
undir fyrirsögninni: „Odæðisverk bandarískra
hermanna:"
,,Ef þau (þ. e. Bandaríkin) ekki gera það
(þ. e. hreint fyrir sínum dyrum) og hegna
harðlega þeim, sem standa fyrir ódæðis-
verkum á óbreyttum borgurum í Víetnam,
kann svo að fara, að sá siðferðilegi grund-
völlur, sem þau hafa staðið á sem forustu-
þjóð lýðræðisins bresti og eftir standi stór-
veldið eitt samvizkulaust og grátt fyrir járn-
um. En kannski er það einmitt einn megin-
tilgangur kommúnista með styrjöldinni í
Vietnam (Leturbr. og innskot vor).
Með öðrum orðum: Vondir kommúnistar
hafa tælt saklausa og góða Bandaríkjamenn
út í svívirðilega styrjöld í Víetnam, til þess
veslings saklausu Bandaríkjahermönnunum
verði það óvart á að nauðga stúlkum og
drepa saklaust fólk og hljóti svo skömm af!
Þetta er skilningur víðlesnasta blaðs borg-
arastéttarinnar á íslandi á þeirri ógn, sem
gengið hefur yfir eina af fátækustu þjóðum
heims, vegna þess að ríkasta auðmannastétt
veraldar ágirnist auðlindir hennar. Meðan
samúðin með hetjuþjóð Víetnam einkennir
frændþjóðir vorar á Norðurlöndum, liggur
Morgunblaðið hundflatt fyrir morðher þeirra
Bandaríkjayfirvalda, sem brennimerkt eru í
eigin landi fyrir lygar að þingi og þjóð ein-
mitt um upptök þessa stríðs.
Er það ekki eðlileg afleiðing af þessum
takmarkalausa undirlægjuhætti að þetta aft-
urhaldssamasta málgagn auðvalds í Evrópu
skuli einmitt nú berjast fyrir því með kjafti
og klóm að þetta ameríska auðhringaher-
vald#), grátt fyrir járnum og blóðugt upp
að öxlum, skuli einnig hafa her á Islandi,
ekki síður en í Víetnam.
*) Orð þetta er fengið að láni frá Eisenhower for-
seta, og hann varaði við því I kveðjuræðu sinni og
nefndi það á sínu máli; „the military-industrial
complex".
8