Réttur


Réttur - 01.01.1972, Blaðsíða 9

Réttur - 01.01.1972, Blaðsíða 9
ÓLAFUR R. EINARSSON: VINNUTIMINN OG STYTTING HANS Sögulegt yfirlit um baráttuna fyrir styttingu vinnudagsins heima og erlendis Á s. I. hansti vann verkaljðshreyfingin á Islandi minnisstæðan signr í mikilvœgu rétt- indamáli. Lögfesting 40 stunda vinnuviku, sem alþingi samþykkti í desember og einnig lögin um 4 vikna orlof eru hvoru tveggja ávöxtur af áratuga baráttu verkalýðshreyfing- arinnar fyrir mannscemandi lífskjörum. Bar- áttan fyrir takmörkun vinnutímans hefur staðið allt frá því verkalýðsstéttin kom fyrst fram í iðnbyltingunni, sem hófst í Bretlandi um miðja 18. öld. Sigrar í þeirri baráttu verkalýðshreyfingarinnar hafa unnizt vegna þrautseigrar og harðvítugrar baráttu verka- lýðsins um allan heim og þrýstings frá verka- fólki á löggjafarsamkomur þjóðanna um að settar væru reglur um lengd vinnuvikunnar. Svo var einnig hér á Islandi, er þessi sigur vannst skömmu fyrir áramót. I tilefni þessa áfangasigurs í réttindabaráttunni verða hér rifjuð upp ýmis atriði úr sögu baráttunnar fyrir styttingu vinnuvikunnar. 1<!—18 STUNDA DAGVINNA Með iðnbyltingunni mótuðust þeir fram- leiðsluhættir, sem buðu verkalýðsstéttinni þau lífsskilyrði, að afla sér lífsnauðsynja með því að selja vinnuafl sitt í lengri eða skemmri tíma. Kjör verkafólks voru mjög slæm. Stjórnvöld létu atvinnulífið afskipta- laust og hlutuðust ekki til um aðbúnað verka- fólks. Aðstaða á vinnustöðum var slæm og slys mjög tíð. Verkamenn bjuggu oft í hverf- um, sem atvinnurekendur létu hrófla upp 9

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.