Réttur - 01.01.1972, Page 19
Við undirskrift viðskiptasamninga Islands og Sovétrikjanna í Moskvu 2. nóv. 1971. Annar og þriðji frá
vinstri i fremri röð eru viðskiptaráðherrar landanna: Patolichev og Lúðvik Jósepsson.
lestir eitt árið og hefur síðan aldrei orðið
meiri. Mun láta nærri að útflutningur til
Sovétríkjanna hafi þá komist upp í um 20%
af útflutningi Islands, en heildarútflutningur
til sósíalistísku landanna — og þar með
viðskifti við þau, því þá var allt á jafnvirðis-
grundvelli — verið upp undir þriðjungur af
utanríkisverzlun Islands. Sýnir sú reynsla
hverjir möguleikarnir eru.
Viðreisnarstjórnin vann að því af kappi að
brjóta þessi viðskifti niður og varð vel ágengt.
Viðskifti Islands við Sovétríkin hafa undan-
farið verið milli 7 og 9% af veltunni, en
alls við sósíalistísku löndin 12—14%. Mein-
ingin mun hafa verið um tíma að eyðileggja
viðskiftin við Sovétríkin alveg með því að
láta Standard Oil koma hér upp olíuhreins-
unarstöð og kippa þannig algerlega grund-
vellinum undan viðskiptunum, — en það
tókst ekki.
Það er þrennt, sem ber að athuga, þegar
rætt er um möguleika eða nauðsyn á miklu
meiri viðskiftum Islands við Sovétríkip og
önnur sósíalistísk lönd:
1. Ef viðskiftakreppa skyldi harðna og
dýpka verulega í Vestur-Evrópu, verður mikil
nauðsyn fyrir lsland að stórauka viðskiftin
við sósíalistísku löndin. Ber að hafa þetta
snemma í huga, því nú þegar leita auðvalds-
lönd Vestur-Evrópu af ákefð eftir mörkuðum
í sósíalistísku löndunum. Auðvaldsherrun-
um sjálfum er ljóst hvaða gildi kreppulaus
lönd hafa fyrir þá og vörur þeirra, ef það
harðnar á dalnum.
2. Ef Vestur-Þýzkaland og/eða England
19