Réttur


Réttur - 01.01.1972, Page 20

Réttur - 01.01.1972, Page 20
skyldu hefja verzlunarstríð við okkur, eins og England gerði 1952, þá verður einnig brýn nauðsyn fyrir Island að stóranka viðskiftin við sósíalistísku löndin. 3. En almennu höfuðrökin fyrir því að stórauka viðskiftin við þessi lönd eru þau að eigi að reyna að vinna fullunnum íslenzkum iðnaðarvörum stórmarkaði erlendis, þá geta einmitt Sovétríkin og önnur sósíalistísk lönd orðið sú lyftistöng slíkum iðnaði, sem gerir honum síðan mögulegt að berjast fyrir út- breiðslu á hinum erfiðu mörkuðum auðvalds- landa, sem voldugir auðhringar venjulega einoka undir yfirskyni „frjálsrar verzlunar". Dæmin sanna þegar hvílíkt gildi stórsamn- ingar við Sovétríkin hafa til þess að tryggja uppbyggingu og eflingu slíks iðnaðar á Is- landi. LJllariðnaðurinn, — þ. e. fullvinnsla ull- arinnar í erlenda markaðsvöru, — byggist nú hvað erlendan markað snertir fyrst og fremst á Sovétríkjunum: Yfir 90% ullarteppanna frá verksmiðjum samvinnuhreyfingarinnar fór þangað 1970. Þrír fjórðu hlutar allra prjónavöru úr ull fóru þangað 1970, og enn þá hærra er þetta hlutfall, ef ullarpeysur sam- vinnuverksmiðjanna eru teknar einar. Hvað niðurlagðar og niðursoðnar sjávaraf- urðir snertir, þá fer helmingur þeirra nú þeg- ar til Sovétríkjanna og annara sósíalistískra landa miðað við útflutninginn 1970, en hvað niðurlagða síld snertir, þá eru Sovétríkin höf- uðmarkaðurinn, kaupa milli 90% og 100% af þeirri útflutningsvöru. Hvað snertir ýmsan annan innlendan iðn- að, svo sem t. d. málningu, þá er þegar Ijóst að einmitt þar eystra má hægast vinna upp markað, sem síðan gæti orðið viðkomandi iðnaði lyftistöng til J>ess að ryðja sér til rúms víðar. Samningar þeir, er Lúðvík Jósefsson við- skiftamálaráðherra undirritaði í Moskvu 2. 20 nóv. 1971, sýna hvernig auka má þennan markað og tryggja til langs tíma, þegar unn- ið er að þvi af áhuga og heilindum. Yfirburð- ir hins sósíalistíska markaðs felast í öryggi hans, kreppuleysi og því að semja má til margra ára. Fyrir íslenzkan iðnað, sem er að reyna að brjóta sér braut erlendis, er því slík- ur markaður beinlínis lykill að frekari út- breiðslu. — I samningum þessum var m. a. samið um að tvöfalda markað fyrir niður- lagða síld og stórauka hann fyrir ullariðnað- inn, sem og málninguna. Sama máli og með Jxmnan íslenzka iðnað, sem þegar er til og nú var um rætt, gegnir og hvað snertir alíslenzka stóriðju, ef við ætlum að koma henni upp, — og það er lífsnauðsyn. Að vísu kemur vel til mála að hafa um stór- iðju samvinnu og sameign við útlenda aðila, — einkum þó með tilliti til J>ess að erfitt og oft ókleift er að komast inn á erlenda auð- valdsmarkaði án slíks samstarfs. (Það sýndi saga kísilgúrverksmiðjunnar). En að svo miklu leyti sem vér mundum reyna að koma upp alíslenzkri stóriðju, t. d. í sjóefnaiðnaði (salt — klór — magnesíum), þá væri það næsmm óhugsandi að leggja í slíkt, nema að tryggja að miklu leyti markað fyrirfram til nokkurra ára a. m. k. og einmitt þá tryggingu geta sósíalistísku markaðirnir veitt. Stóraukin viðskifti Islendinga við Sovétrík- in og önnur sósíalistísk lönd eru því eitt höf- uðskilyrði til þess að tryggja fulla atvinnu og uppbyggingu fullvinnslu-iðnaðar og ís- lenzkrar stóriðju sem og til að verjast hugsan- legum áföllum í viðskiftum við auðvalds- lönd Véstur-Evrópu.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.