Réttur


Réttur - 01.01.1972, Síða 40

Réttur - 01.01.1972, Síða 40
Varsjárbandalagsherjanna í það land. Jó- hann færir rök að því að endurnýjunin frá janúar til ágúst 1968 í Tékkóslóvakíu mark- ar upphafið að „fyrstu meiriháttar prófraun á möguleikum hinna hálf-sósíalísku þjóðfé- laga Ausmr-Evrópu til að brjótast út úr ó- göngum núverandi stjórnkerfis, sem venja er orðin að kenna við skrifstofuvald, og byggja upp hið pólitíska og félagslega lýð- ræði, sem samkvæmt hugmyndum marxista er óaðskiljanlegur þáttur hins sósíalíska þjóð- félags”. Það viðhorf, sem Jóhann er að koma á framfæri með ívitnuðum skrifum sínum í RÉTT eru langt frá því að vera mótsagna- kenndur samtíningur heldur hlutar sam- stæðrar heildar, svo sem vera ber hjá marx- ista. Það er engin tilviljun að drætti þessara sömu pólitísku hugmynda er einnig að finna í doktorsritgerð Jóhanns. Ég hef gert mér til gamans að taka upp glefsur úr aðgengi- legri hlumm bókarinnar „Von Marcuse zu Marx" sem sýna þetta. Éara þeir hér á eftir í óvandaðri og flausmrslega gerðri þýðingu: „Sú gagnrýni sem hér er sett fram á krít- ísku kenninguna fellst á margar helztu for- sendur hennar, og er hún að því leyti frá- brugðin öðrum viðhorfum sem skírskota til marxismans en hafa gert þá kröfu til sjálfra sín að hrekja krítísku kenninguna, eða þá að ætlunin hefur verið að sýna að í henni dyldist endurskoðun (revision) á marxisman- um". (Bls. 249). „Það var sjálfsagður hlutur fyrir krítísku kenninguna á 4. áratugnum að hún leitaði upphafs síns í gagnrýni Marx á pólitískri hagfræði. Krítíska kenningin leit á það sem verkefni sitt að setja fram nánari skýringu á því sérstaka í fræðilegum grundvelli marx- ismans og vekjá athygli á því nýja sem fælist í marxismanum, skýra mörkin milli hans og fyrri hefðbundins grundvallar heimspekinn- 40 ar; einnig að fjalla um þá ákveðnu merking- arbreytingu sem einstök grunnhugtök úr heimspekilegri arfleifð fá innan marxískrar hugsunar". (Bls. 93). „Á 4. áratugnum þóttust forvígismenn krítísku kenningarinnar vera „samvizka vinstrisinnaðra marxista meðal mennta- manna". Andspænis hinni örlagaríku hnign- un sósíalískrar verkalýðshreyfingar, sem or- sakaðist af ytri ósigrum og innri afskræm- ingu, þurfti að haldá á lofti grundvallaratrið- um marxískrar kenningar og verja þau gegn hugmyndum hentistefnu og skrifræðis". (BIs. 177). „Orsakir sem hvöttu til frekari þróunar á krítísku kenningunni í þessa átt lágu í pólitískri afturför 4. áratugsins, sem nær há- marki í fasisma og stalínisma. Hún þýddi tvöfaldan ósigur marxismans: Annars vegar var beinlínis niðurbrot þeirra þjóðfélagsafla sem höfðuðu til hans og afturhaldssöm lausn á kreppu kapítalismans sem ekki hafði verið gert ráð fyrir áður. Hins vegar var fram- kvæmd á marxismanum sem staðnæmdist í varajátningu en fjarlægðist anda hans og upphafleg markmið í æ ríkari mæli. En ófarir 4. áratugsins voru þó ekki nema fyrirferðarmikil fæðing langvinnrar þróun- ar, sem einnig getur tekið á sig friðsamlegar myndir. Alveg eins og fasisminn sýnist nú hafa verið millispil — örlagaríkt að vísu — yfir í kapítalisma með korporatívu sniði, þannig var og iðnvæðing Sovétríkjanna á fjórða áratugnum, rekin áfram með nauð- ungaraðferðum, ásamt gagnbyltingarkennd- um fjöldamorðum áranna 1936—1938, að- eins áfangi á þeirri braut að drottnunarkerfi skrifræðis festi sig í sessi. I því kerfi hrærist árangur byltingarinnar á hugmyndafræðilegu sviði og varðandi uppbyggingu stofnana sam- an við ýmsa sérhagsmuni annars vegar og innantóma dýrkun á almennum þjóðfélags- J

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.