Réttur - 01.01.1972, Blaðsíða 43
Kommúnistaflokksins, var í forustu EAM,
mótspyrnuhreyfingu Grikkja á hernáms-
unum, leiðtogi „fjallstjórnarinnar" í borgara-
stríðinu, var síðan í útlegð til 1959- Þá hélt
þessi hetja, sem forðum hafði haft með hönd-
um samninga við Churchill, Stalin og fleiri
fyrir hönd frjálsra Grikkja, heim í neðan-
jarðarbaráttuna á gamals aldri — við hlið
hinna ungu. Og nú hefur fasistastjórnin náð
honum.
Gríski Kommúnistaflokkurinn heima fyrir
mótmælti innrásinni í Tékkóslóvakíu 1968
og hefur það leitt til nokkurs klofnings er-
lendis. Manolis Glezos, sem Réttur hefur
áður sagt frá, (1963, bls. 132—138) stend-
ur með þeim Partsalides, Drakopoulas og
félögum þeirra.
kirkjur ameri'ku —
KAUPMENN dauðans
Nýlega lét rannsóknardeild sameiginlegs
kirkjuráðs þrjátíu og þriggja kirkna í Banda-
tíkjunum (National Council of Churches)
rannsaka fjárfestingu tíu mótmælendakirkna.
Það kom í ljós að þessar kirkjur áttu hluta-
bréf, er námu 203 miljónum dollara í 29
stórum herbúnaðarfyrirtækjum Bandaríkj-
anna.
Mest var fjárfestingin hjá United Method-
ist Church (metodistakirkjunni): 59 miljónir
dollara í 23 fyrirtækjum, sem hafa hergagna-
samninga við Pentagon, hermálaráðuneytið.
Næst kom United Presbyterian Chnrch (sam-
svarandi ensku biskupakirkjunni) með 57
miljónir dollara, síðan American Baptist Con-
vention (baptistasöfnuður) með 30 miljónir
dollara.
Auðfélögin sem nutu hinnar „kristilegu"
fjárfestingar, eru fyrst og fremst IBM, sem
KIRKJUR OG KAUPMENNSKA
„Og hvar er sigur Krists um kristinn heim?
Að kirkjum hans er einginn vandi að leita,
en krossinn hans er orðinn einn af þeim,
sem algerð þý og hálfa manndyggð skreyta.
Og heldurðu yfir hugsjón þessa manns
og heimsins frelsi þessir kaupmenn vaki,
sem fluttu milda friðarríkið hans
á fölva stjörnu að allra skýja baki.
Þar komst hún nógu hátt úr hugum burt
og hjer varð eftir nógu tómur kliður,
svo aldrei verði að ceðri jólum spurt
og aldrei komist friðarríkið niður."
Þorsteinn Erlingsson: úr „Jól” 1906
framleiðir m.a. stýristækin fyrir sprengjuflug-
vélarnar, sem myrða í Vietnam, og General
Motors, sem framleiðir m. a. vélar í sprengju-
flugvélar, skriðdreka, byssur og eldflaugar.
Margir heiðarlegir prestar gagnrýna þetta
framferði og berjast gegn stríðinu í Víetnam
og hafa sumir hlotið fangelsisdóma fyrir.
FJALLRÆÐAN OG AUÐRÆÐIÐ
„Safnið yður ekki fjársjóðum á jörðu, þar
sem mölur og ryð eyðir, og þar sem þjófar
brjótast inn og stela; en safnið yður fjársjóð-
um á himni, þar sem hvorki eyðir mölur né
ryð, og þar sem. þjófar brjótast ekki inn og
stela, því að þar sem fjársjóður þinn er, þar
mun hjarta þitt vera.”
Jesús frá Nasaret í „Fjallrœðunni"
Mattheusar guðspjalli 6, 19—21.
43