Réttur - 01.01.1972, Blaðsíða 45
muni Harvard-háskólinn skammast sín að
eilífu.
Nú er svo komið að m. a. s. John Reed er
loks viðurkenndur sem sá mikli og framsýni
rithöfundur, er hann var. En hann var aðeins
33 ára er hann dó 17. október 1920.
Edgar Snow hafði ritað sína ágætu bók
„Rauða stjarnan yfir Kína" eftir ferðalag sitt
i „sovét-héruðum" Kína 1936—37.*) Á
tímum kalda stríðsins var hann fordæmdur
af afturhaldi Bandaríkjanna. Svo taumlaust
var ofstækið hjá dýrlingi Morgunblaðsins,
Dulles, að hann neitaði að heilsa Chou-En-
Lai eða taka í hönd hans á Genfarfundinum
um Indó-Kína 1955. Þessi brjálsemiskennda
afstaða ríkti enn hjá viðreisnarstjórninni sem
neitaði að viðurkenna Kína og taka það inn
í sameinuðu þjóðirnar. — Nú loks, þegar
Nixon gengur sína Canossa-göngu til Peking,
heyrir íslenzka afturhaldið „rödd síns herra"
(„His masters voice") og snýr við blaðinu.
— Það var ekki fyrr en 1960 að Edgar
Snow fékk leyfi bandarískra stjórnvalda til
að fara aftur til Kína — og þá næstum því
með brögðum. Upp úr þeirri ferð skrifaði
hann bókina „Hinumegin árinnar" („The
other side of the river").
Og nú er sú Bandaríkjaþjóð, sem uppgötv-
ar að fjórir forsetar lugu að henni um Viet-
nam, að sjá að John Reed og Edgar Snow
sögðu henni satt.
H;ð rauða Kína gekk á þessum árum oft undir
nafninu „Sovét-Kína". Ég hafði haldið erindi í út-
yarpið 1935—36 um Sovét-Kína, en safnaði efni
dl þess með viðtölum við fulltrúa Kínverska Komm-
únistaflokksins á 7. heimsþingi Komintern 1935 og
tneð viðtali við Borodin. Seinna gaf ég kínverskri
sendinefnd, er hingað kom, handritið. Létu þeir
Þýða það og töldu að ég hefði verið með svipað
mat á byltingunni og Edgar Snow. Þótti mér vænt
um. — E. O.
John Reed
45