Réttur - 01.08.1985, Síða 2
hers. En þar aö auki fjölgar í sífellu þeim verkamönnum, sem vinna hjá „ís-
lenskum" verktökum í þágu Kanans, og munu brátt nema 1000 og fjölga síö-
an í sambandi viö hina gegndarlausu útþenslu manndrápstækja og mannvirkja
í sambandi viö þau, sem hernámsvaldiö nú lætur vinna aö.
í þriðja lagi er bandaríkjavaldið orðið stærsti lánardrottinn íslend-
inga, okrar á oss sem hverjum öörum nýlenduþjóöum og lætur þjóna sína
sökkva íslandi æ dýpra í skuldafenið, til þess aö ná einnig því kverkataki á
íslensku efnahagslífi og frelsi þjóöarinnar.
Og síst af ölltj má gleymast að þetta bandaríkjavald hefur með of-
beldi, loforðum, svikum og blekkingum hernumið land vort og heldur
því enn ólöglega hernumdu.
Baráttan gegn auð- og hervaldi Bandaríkjanna verður því frelsisbar-
átta jafnt íslenskrar alþýðu sem þjóðar vorrar í heild. Og síst má þetta
illa vald ná því takmarki að hernema svo hugi íslendinga að þeir sjái
ekki hver hættulegasti og skæðasti óvinur þjóðarinnar er: sá sem mútar
yfirstétt hennar, rænir alþýöu hennar, spillir menningu hennar og stofnar lífi
hennar í bráöa hættu í eigin þágu.
Þaö er sótt að menningu, þjóðarmeövitund og sjálfstæöistilfinningu vor ís-
lendinga meö skæöustu vopnum voldugra fjölmiöla til þess að fá oss til þess
aö líta á kúgara vora og hættulegustu fjandmenn sem „verndara" íslands.
Það á að kenna íslendingum að kyssa á vöndinn og knékrjúpa fyrir
böðlunum frá Hiroshima, Nagasaki og Víetnam.;
Þaö verður þyngst þolraunin fyrir (slendingseöliö í 1000 ár — en við verö-
um aö standast þá eldraun: kyssa ekki á vöndinn.
En vér stöndum ekki einir í sjálfstæðisbaráttu vorri. Bandaríkjaauövaldið
ætlaði sér eftir 1945 aö leggja undir sig allan heiminn. Ofmetnaðurinn og ein-
okun atómsprengjunnar blindaði yfirstétt þess.
Henni tókst að vísu að gera Suöur- og Mið-Ameríku-þjóðirnar aö skulda-
þrælum sínum, en þær eru nú aö rísa upp gegn okinu.
En fyrst og fremst strönduöu heimsvaldaáform þessa auðvalds á Sovétríkj-
unum. Þau höföu að vísu misst 20 milljónir manna við að sigrast á fasisman-
um, — meðan auövald Bandaríkjanna græddi of fjár. — En samt hafa stríðs-
óöir auðdrottnar Bandaríkjanna ekki þorað í hildarleikinn gegn Sovétríkjun-
um enn — þeir óttast hann gæti orðiö sá síöasti — fyrir mannkyniö allt.
Það er mál að vér íslendingar losum okkur við hernámsrisann banda-
ríska, segjum upp öllum kúgunarsamningum við hann, rekum her hans
á brott, förum úr hernaðarbandaiagi Nato — og gerum ísland aftur
frjálst.