Réttur - 01.08.1985, Blaðsíða 44
Auðugasta og
skammsýnasta yfirstétt
íslands er að eyðileggja
íslenskt atvinnulíf
Jafnframt er hún að leiða
fátæktina yfir aiþýðu á ný
og sökkva þjóðinni í
skulda þræidóm
Nú ríkir á íslandi auðugasta, frekasta og skammsýnasta yfirstétt, sem hér hefur
nokkru sinni setið að völdum. Hún er þjóðinni og sérstaklega vinnandi stéttum
svo stórhættuleg að verði þjónum hennar í Ihaldi og Framsókn ekki komið frá
völdum, mun þjóðin ekki bíða þessa skaða bætur, er hún veldur, á næstu ára-
tugum.
Jafnt fjárfestingarpólitík hennar, gengisskráning og svindl er með slíkum ein-
dæmum að gengur glæpi næst. Og aðaltilgangur hennar í öllu þessu er að rýra
stórum lífskjör þeirra vinnandi stétta, er halda henni uppi. Og samfara öllu þessu
fer svo sérstaklega hjá þeim, sem í núverandi stjórn ráða utanríkispólitík, smán-
arlegasti undirlægjuháttur og undirgefni við hernámsveldið bandaríska og ráð-
stafanir til útþurrkunar íslenskrar þjóðar, ef bandaríska herveldið byrjar það
árásarstríð, er það undirbýr.
Fjárfestingarpólitík, sem er
fásinna fyrir þjóðina
Þeir hermangarar og braskarar, sem
ráða íhaldi og Framsókn, hafa fest tugi
milljóna króna í verslunar- og skrifstofu-
höllum og verksmiðjum erlends auð-
valds. Því er svo komið að þessar afætu-
stéttir hvíla sem mara á atvinnulífi þjóð-
arinnar og valda því að peninga skortir til
að byggja upp þau fyrirtæki, sem þjóð-
inni nú væri nauðsynlegust, svo sem fisk-
eldisstöðvar, úrvinnslu á enzymi (lífhvati)
o.s.frv., og jafnframt ódýrt íbúðarhús-
næði.
Þessar skammsýnu, gróðaþyrstu yfir-
stéttir hafa jafnframt knúð fram þá stefnu
að taka takmarkalaust lán erlendis og
kalla þessa þjóðhættulegu stefnu sína
„frelsi".
172