Réttur


Réttur - 01.08.1985, Blaðsíða 46

Réttur - 01.08.1985, Blaðsíða 46
að borga allar olíuskuldirnar um hver áramót. Þetta er afleiðing „frelsisins", þ.e. ótak- markaðs brasks í viðskiptunum án tillits til þjóðarhags. — Það þyrfti að taka olíu- félögin taki, — líkt og K.F.I. og bílstjór- arnir gerðu 1935, er þeir knúðu þau til að taka á sig bensíntollinn. En íhald og Framsókn eiga sitt félagið hvort og vilja fá að græða sem afætur á kostnað sjávar- útvegs og fiskvinnslufólks — og halda áfram uns allt hrynur undan áfergju þeirra, ef alþýðan tekur ekki í taumana fyr og rekur þessar afætur frá völdum. Það þarf ekki nema líta á þann aragrúa fínna bensínstöðva um land allt, sem þessi olíufélög reisa, til þess að sannfær- ast um að þau hafa næga peninga og kunna ekkert með þá að fara, ef þau ættu að hugsa um þjóðarhag. Banaráð brugguð íslenskri þjóð Hið óhugnanlegasta af öllu, sem banda- ríska auðvaldið ætlar sér með ísland, er þó að gera það að einhverju ægilegasta árásarvirki sínu gegn Evrópu. Það reyndi Bandaríkjastjórn strax 1945 samkvæmt ákvörðun herráðs þess frá 1944. En þá voru enn það sterkir og stoltir íslendingar í forustusveitum flokkanna að kröfunni til að afsala hluta af íslandi undir amerísk yfirráð til 99 ára var neitað. Nú er hins- vegar unnið markvíst að því að breyta ís- landi á nokkrum árum í bandarískt árás- arvirki og er sem þjónslund vissra íslend- inga eigi sér nú engin takmörk, þegar vilji bandaríska hervaldsins er hinsvegar, enda dyggilega búið um hnútana: stórlax- ar stjórnarflokkanna flæktir í net her- mangaranna, sem grætt hafa svo skiptir þúsundum milljóna ísl. króna á þjónustu við hernámsliðið. í þessu máli liggur líf þjóðarinnar við. Eftirtektarvert hvernig Kaninn hagnýtir sér fávisku hinna ábyrgu manna og fær þá jafnvel til að halda að það sé verið að verja ísland, þegar ráðstafanir eru gerðar til að gera þjóð vora að einhverju fyrsta fórnarlambi bandaríkjahers eftir að hann hefur hafið árásarstyrjöld sína. Líf þjóðarinnar liggur við að þeir, sem „braska með vort blóð“ séu settir frá áður en það er of seint. SKÝRINGAR: I Sjá ,.Rctt“ 1976. bls. 249, þar scm bandaríska íyrirskipunin til Alþingis, sú crsíöarvar falin. cr birt. 174

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.