Réttur


Réttur - 01.08.1985, Blaðsíða 19

Réttur - 01.08.1985, Blaðsíða 19
grunninn að fyrsta húsinu að Reykja- lundi. Hinar giftusamlegu framkvæmdir voru hafnar. Maríus Helgason, sem var varaforseti S.Í.B.S. þegar Andrés lést og tók við af honum, segir m.a. í minningargrein um hann í blaðinu Berklavörn: „Það var fyrst eftir stofnun S.Í.B.S. að ég kynntist Andrési og urðum við þá strax góðir vinir, og ég á margar ljúfar minn- ingar frá samverustundum, er við unnum saman að málefnum S.Í.B.S. og minnist ég alveg sérstaklega samvinnulipurðar hans. Þessar stundir urðu því miður alltof fáar. Ég er viss um, að það var eigi tilvilj- un ein er réði því, að Andrés var valinn fyrsti forseti samtaka vorra, og ávallt endurkjörinn á hverju sambandsþingi, heldur mannkostir hans og foringjahæfi- leikar. Hann var mannvinur mikill, sem best sást á því, að hann helgaði þeim krafta sína sem vanheilir og vanmáttugir voru.“ Jón Rafnsson segir m.a. í minningar- grein um Andrés í Þjóðviljanum: „Við félagarnir frá frumbýligsárum verkalýðssamtakanna í Vestmannaeyjum munum seint gleyma því þvílík liðsbót okkur varð að Andrési, er hann dvaldi þar í Eyjum meðal okkar og gerðist m.a. meðritstjóri að einu fyrsta sósíalistablaði hér á landi, Vikunni. Og þvílíkan þátt hann átti í sköpun sterkrar verkalýðs- hreyfingar í Vestmannaeyjum. Andrés var einn af stofnendum Kommúnista- flokks íslands og síðar var hann hvata- maður að stofnun Sameiningarflokks Al- þýðu — Sósíalistaflokksins og einn af traustustu stuðningsmönnum hans til dauðadags." Þannig var Andrés Straumland alltaf trúr lífsskoðun sinni, að koma þeim til hjálpar sem undir högg áttu að sækja í lífsbaráttunni, hvort sem það var vegna þröngra lífskjara á atvinnusviði eða sjúk- dóma. Og samkvæmt þessari háleitu lífs- skoðun, þá lagði þessi mikli hugsjóna- maður fram alla krafta sína í þágu fram- fara og mannúðarmála. Eigin ávinningi var ævinlega fórnað í þágu hugsjónarinn- ar. Andrés Straumland féll í valinn aðeins fimmtugur að aldri, en átti þá að baki óvenjumikið og farsælt ævistarf, sem vitn- ar um mannkosti hans og foringjahæfi- leika. Það var hamingja S.Í.B.S. að hafa slíkan mann í forustu á fyrstu erfiðleika- árum sambandsins. Mann sem allir treystu til góðra verka. Því verður nafn Andrésar Straumlands á spjöldum sögunnar tengt einu mesta mannúðarátaki þjóðarinnar á þessari öld, þegar sjúkir menn á berklahælum lands- ins stofnuðu S.Í.B.S. og reistu Reykja- lund, studdir af allrí þjóðinni. Blessuð sé minning hugsjónamannsins Andrésar Straumlands. Jóhann J.E. Kúld. 147

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.