Réttur - 01.08.1985, Blaðsíða 22
Yfirleitt skráir sigurvegarinn söguna,
en engin regla er án undantekninga. Hér
á Vesturlöndum er það sá sem varð að láta
í minni pokann sem mótar viðhorfin jafnt
gagnvart Víetnam sem á öðrum sviðum.
Ekki höfðu Bandaríkin fyrr yfirgefið Víet-
nam en þau héldu stríðinu áfram með
öðrum vopnum. Með látlausum áróðri
þar sem allir atburðir þar austurfrá eru
túlkaðir með öfugum formerkjum er
reynt af afmá lærdóm Víetnamstríðsins
úr vitund okkar. Hér á eftir verða í ör-
fáum orðum raktir atburðir síðustu tíu
ára en í næsta hefti rifjaður upp í grófum
dráttum gangur Víetnamstríðsins.
Bandarókir hermenn að störfum.
Víetnam flakandi í sárum
Bandaríkin skildu við Víetnam flak-
andi í sárum, þjóðin var limlest jafnt and-
lega sem líkamlega og náttúra landsins
sundursprengd. Þegar stríðið stóð sem
hæst var hálf milljón bandarískra her-
manna í landinu (þar af féllu 58 þúsund)
sem stunduðu hryðjuverk með napalm-
sprengjum og fjöldamorðum eins og í My
Lai. Yfir landsvæði sem ekki er nema
rúmur helmingur af flatarmáli Frakklands
var hellt fleiri sprengjum en varpað var í
allri síðari heimsstyrjöldinni. Sárin ná
ekki að gróa næstu öldina.
Bandaríkin skuldbundu sig til að greiða
stríðsskaðabætur og aðstoða við upp-
bygginguna, — „aðstoða við að græða sár
stríðsins“ eins og það var orðað, — og
taka upp friðsamleg samskipti við Víet-
nam m.a. á sviði verslunar. En þau hafa
alveg Iátið vera að greiða stríðsskaðabæt-
urnar og jafnframt sett strangasta verslun-
arbann á landið og skipað Vestur-Evrópu
að taka þátt í þessu, — það eru einungis
Svíar sem halda áfram aðstoð við Víet-
nam.
Kvislingar og bátafólk
Bandaríkin skildu eftir sig sjúkt sam-
félag í suðurhluta landins, ótölulegan
fjölda eiturlyfjaneytenda og vændis-
kvenna og jafnvel enn illkynjaðra samfé-
lagsmein — landráðamenn og fólk sem
lifði snýkjulífi utan í innrásarliðinu. f
Víetnamstríðinu höfðu heimsvaldasinn-
arnir sýnt heiminum morðingjaeðli sitt,
nú héldu þeir að Víetnamar væru sama
eðlis og biðu í ofvæni eftir að geta réttlætt
gerðir sínar með tilvísun til blóðbaðs í
Víetnam eftir sigurinn. 'En Víetnam kom
heiminum enn eina ferðina á óvart með
mannúðlegri meðhöndlun á kvislingum.
150