Réttur - 01.08.1985, Blaðsíða 27
Fimmti hluti greinaflokks
uiii Mid-Ameríku:
„Byltingu eða dauða“
Frelsisbaráttan síðastliðinn áratug
> E1 Salvador og Nícaragúa.
í umfjöllun okkar um sögu Mið-Ameríku tökum við nú að nálgast nútímann.
Hér á eftir fer stutt yfirlit yfir þróun mála í E1 Salvador og Nícaragúa, þeim
löndum sem mest hafa verið í sviðsljósinu síðasta áratuginn.
El Salvador
Eftir seinni heimsstyrjöldina reyndu
aðilar úr hernum, stjórnkerfinu og milli-
stéttinni, en hún hafði talsverð áhrif þrátt
fyrir smæð sína, að færa efnahagslíf
landsins í nútímalegra horf með því að
leita uppi fjármagn til fjárfestingar. Til
grundvallar þessu lá hækkað verð á kaffi
Sern gaf auknar tekjur.
A 6. og 7. áratugnum átti sér reyndar
stað nokkur iðnvæðing og fjölbreytni í
efnahagslífi landsins jókst. Þrátt fyrir
þetta voru völdin að mestu leyti áfram í
höndum jarðeigendanna og þau stjórn-
Hernaðarþjálfun í Bandaríkjunum eða
í þjálfunarbúðum Bandaríkjanna við
Panamaskurðinn (1950-76):
Costa Rica 696 manns
El Saivador 1.925 manns
Guatemala 3.213 manns
Hondúras 2.888 manns
Nícaragúa 5.167 manns
Panama 4.389 manns
Alls 18.278 manns
völd sem að breytingunum stóðu voru
mismunandi einræðisstjórnir — herfor-
ingjastjórnir eða borgaralegar — sem
hrifsuðu völdin á víxl. Kommúnistaflokk-
urinn studdi þessa umbótastefnu.
Á þessum tíma var líka stofnaður
flokkur kristilegra demókrata, sem var
fulltrúi iðnaðarauðvaldsins, og flokkur
sósíaldemókrata, sem var millistéttaflokk-
Skæruliði í El Salvador.